Reykfylltu bakherbergin

428471A

Spennandi dagur, Uppstigningardagurinn 2007, hugsanlega ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í burðarliðnum.

Það var stórmerkilegt að horfa á Kastljósið áðan. Ingibjörg var ísköld í stöðunni og komst vel frá sínu og ræddi m.a. um að ekki hefði komið til greina fyrir Vinstri græn að mynda ríkisstjórn með Framsókn. Það var svo staðfest í viðtalinu við þá Steingrím J. og Guðna Ágústsson, en þegar þeir fóru að ræða stöðuna var ýmislegt sem kom fram. Steingrímur vildi senda Framsókn í endurhæfingu, en var tilbúinn að hleypa þeim svo um borð í ríkisstjórnina þegar þeir væri búnir að ná sér. Þeir Steingrímur og Guðni vildu báðir gefa eftir forsætisráðherraembættið til ISG. Mikið var rætt um baktjaldamakk Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og Guðni talaði um trúnaðarbrest milli stjórnarflokkanna og Baugsríkið. En trúlega hafa ekki verið haldin nein kaffiboð hjá Kaffibandalaginu nýlega fyrst Ingibjörg Sólrún sagðist hafa heyrt það í fyrsta skipti frá Steingrími J. Sigfússyni, formanni VG, í fjölmiðlum nú síðdegis að hann teldi að Samfylkingin ætti að fá umboð til að mynda vinstristjórn. 


mbl.is Ingibjörg Sólrún: VG vildi ekki mynda stjórn með Framsóknarflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Í Kastljósi voru færð fram tvö mikilvæg sönnunargögn fyrir því að enginn annar möguleiki var í stöðunni fyrir Samfylkinguna og Sjálfstæðisflokkinn. Sönnunargagn nr 1 var maður að nafni Steingrímur J  Sigfússon lagður fram í eigin persónu og sönnunargagn nr 2 var maður að nafni Guðni Ágústsson einnig lagður fram í eigin persónu. Saman voru þeir fullnaðarsönnun fyrir því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir átti engra kosta völ nema ganga heilshugar til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn.

Helgi Jóhann Hauksson, 17.5.2007 kl. 22:15

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Gott þegar svona lifandi sönnunargönn birtast á skjánum.  Var þetta þá ekki fjarvistasönnun líka? Fyrir Geir H. Haarde?

Vilborg Traustadóttir, 17.5.2007 kl. 22:25

3 Smámynd: Guðmundur H. Bragason

Er Ingibjörg þá sú næstsætasta á ballinu en gerir sama gagn, nei ég bara spyr

Guðmundur H. Bragason, 17.5.2007 kl. 22:59

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það var skemmtilegt "cool look" á ISG í fréttunum, hún var eitthvað svo purky

Ásdís Sigurðardóttir, 18.5.2007 kl. 00:03

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hverjir eru það sem reykja svona mikið í bakherbergjunum?

Jóhannes Ragnarsson, 18.5.2007 kl. 13:14

6 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

Burtséð frá því hvað ég vildi helst þá held ég að stjórn D og S sé sú stjórn sem mest sátt myndi ríkja um í þjóðfélaginu og það hlýtur að vera það sem þarf að hugsa um. 

Jóhanna Fríða Dalkvist, 19.5.2007 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband