Lögreglan sýnilegri

motmaeli

Það eru hálf ömurlegar fréttir sem maður les að heiman, rán, líkamsárásir, fíkniefni, ölvun við akstur, en lögreglan virðist vera að standa sig vel við eftirlit og um allt land og er mun sýnilegri.

Hér í Kaupmannahöfn voru mótmæli í miðbænum gær. Þetta voru mest ungir krakkar sem voru að mótmæla og fylltist bærinn á örskotsstundu af lögreglumönnum. Það er ljóst að lögreglan hér í landi tekur enga áhættu þegar kemur til mótmæla eftir það sem gerðist við Ungdomshuset. Lögreglan var mjög sýnileg hérna í Kaupmannahöfn í gær og hefur líka verið það heima. Bæði á höfuðborgarsvæðinu og einnig á öðrum stöðum á landinu eftir breytingar á skipan lögreglumála í landinu. 

Ég er ég ekki í vafa um að sýnileiki skiptir miklu máli og einnig að upplýsa fólk um það sem gerist líkt og gert var í þessari frétt, en vítin eru svo sannarlega til að varast þau. 


mbl.is Lokkaður inn í húsasund og rændur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta voru hálfömurlegar fréttir að vakna upp við. Ég skil ekki illskuna í mörgum, og þó. Það er ekki öllum hampað í uppeldi og oft gleymist að hlúa að ungmennum og hefur það sínar hræðilegu afleiðingar.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.5.2007 kl. 14:31

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Nei Emil, því miður getur lögreglan ekki verið yfir og allt um kring en hún er vissulega sýnilegri. Það er ömurlegt að svona gerist í okkar samfélagi og hræðilegt að vita til þess að við getum ekki lengur gengið áhyggjulaus um að nóttu til. 

Herdís Sigurjónsdóttir, 28.5.2007 kl. 15:38

3 Smámynd: Rikka

Er svona gaman í Köben að mín er farin að taka til þar ?

Já og til hamingju með stelpuna skilst að hún sé upprennandi kvikmyndagerðar-kona !!!

kv Rikka

Rikka, 1.6.2007 kl. 11:09

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

I miss you. Hvenær kemurðu eiginlega heim ?

Ásdís Sigurðardóttir, 1.6.2007 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband