Vinnuhundar leita uppi sölumenn dauðans

Eiturlyf

Skiptar skoðanir eru um það hvort auglýsa eigi eins og í dag að til standi að vera með aukinn viðbúnað og virkara eftirlit en vanalega. Ég persónulega er mjög hlynnt því að ræða málin opinskátt og er ég sannfærð um að það fælir sölumenn eiturlyfja frá því að selja á útihátíðum, ef þeir vita að þeir geti átt von á að hitta fíkniefnahund í vinnunni. Staðreyndin er sú að sölumenn gera út á útihátiðir og ætla ég að vona að lögreglan nái sem flestum um helgina.

Að nota hunda við leit er leið sem ber árangur og man ég að það voru einmitt hundar sem unnu vinnuna sína á írsku dögunum og kom upp eitthvað á þriðja tug mála ef ég man rétt. Það er ljóst að hægt er að bæta eftirlitið með þessum hætti og hefur það svo sannarlega markvisst verið aukið og árangurinn eftir því.


mbl.is Öflugt fíkniefnaeftirlit um verslunarmannahelgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það á auðvitað að segja frá þessu. Það fælir einhverja og svo vonandi nást hin fíflin með aðstoð hundanna, fælir líka vonandi frá eins og þú segir.

Ásdís Sigurðardóttir, 31.7.2007 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband