Bloggmyndataka

Ég er búin að átta mig á því að bloggmynd er ekki sama og bloggmynd. Ég skipti um mynd í gær og hef fengið töluvert margar ábendingar um að stutt-hára myndin mín hafi bara ekki verið ÉG því ég hafi verið svo alvarleg.... sem er gott, því það bendir til þess að ég sé meira brosandi en ekki LoL.

Ég tók mig því til áðan með nýju DELL_una mína og skaut nokkrar nýjar með krökkunum. Hér eru nokkrar myndir og valdi ég eina þar sem ég er brosandi, en ekki veit ég hvort hún er ÉG.

Sædís Erla og mamma

205413[1]

210018[1]

Ásdís Magnea og mamma

Sturla Sær, Ásdís Magnea og mamma

Sturla Sær og mamma

Æi þessir gullmolar, við Elli minn erum ekkert smá rík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Tómasson

Já þú ert rík Herdís mín og við líka sem njótum samvista við þig.

Þú varst frábær í dag.

Bestu kveðjur frá Vinstri græna Karlinum.

Karl Tómasson, 30.8.2007 kl. 23:04

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég fíla þessa nýju miklu betur, finnst hún vera eins og þú varst þegar ég hitti þig.  Já, þið eruð rík. Barnalán gefur mikla gleði ef rétt er að staðið og ég veit að þú ert súpermamma.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.8.2007 kl. 23:21

3 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Takk Kalli minn . Ég var einmitt að segja Ella hvað þú hefðir verið flottur í dag, gott þetta með ræðuna í fullri lengd á heimasíðunni.

Herdís Sigurjónsdóttir, 30.8.2007 kl. 23:22

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þetta er fallegur hópur sem sést á þessum myndum . Takk fyrir bónorðið

Jóna Á. Gísladóttir, 31.8.2007 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband