Frábært sumar og vætusamt haust

Mynd frá Ásdísi hálfnöfnu

Það er alveg dæmalaust hvað veðrið hefur mikil áhrif á mig. En verð ég samt að segja að þrátt fyrir mikið rigningar haust, er enn nokkur jákvæð orka eftir á sólarsellunni hjá mér og dugar hún svona eina rigningarviku enn. 

þetta sumar var annars alveg dásamlegt og verður lengi í minni haft, nema þetta sé það sem bíður okkar í framtíðinni. Við fjölskyldan fórum ekki til útlanda saman og ferðuðumst í staðinn um landið með nýja fellihýsið í staðinn og var það bara stórgott. Ég var að vísu að hugsa um að selja það um daginn, en svo nennti ég ekki að standa í því og því fer Fleetwoodinn í geymslu um helgina.

Þegar ég hef rætt veðrið undanfarið eru flestir sammála mér með að það sé frábært að fá gott sólríkt sumar og vætusamt haust. En draumastaðan væri náttúrulega sú að taka út smá af haustrigningunni aðfaranótt mánudags yfir sumartímann, svona fyrir gróðurinn Cool.


mbl.is Vaxandi suðaustanátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sé að þú hefur dottið niður á sömu dásamlega skómyndina og ég var með í síðustu viku.  September hefur nú verið býsna blautur. En sumarið var yndislegt það er sko satt.  Nú eru bara rúmar 3.vikur í aðgerð og ég tel dagana, ætla mér að verða mikið hressari eftir hana. Verð alveg í fluggír næsta sumar á fiskidögum.  Vona að námið og allt gangi vel.  knús á alla.

Ásdís Sigurðardóttir, 15.9.2007 kl. 20:50

2 identicon

Herdís, Stríðsdís, Brosdís, Vindís.........hvar ertu ?

ég bara spyr því það er orðið óvenju langt frá síðustu færslu  

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 18:14

3 Smámynd: Andrea

Yndislegir skór!

Andrea, 20.9.2007 kl. 17:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband