Vistfræðipróf og svo jólafrí

Sædís Erla jólastelpa

Ég mátti nú til með að setja eina skemmtilega mynd á síðuna svona til að reyna að fela bloggleysið undanfarið. En það mun nú brátt breytast því ég fer í vistfræðipróf á morgun og svo er ég komin í jólafrí í skólanum og hef nægan tíma til að blogga mér til ánægju og yndisauka. Svo af því að mér er svo mikið í mun að sanna það að ég sé ekkert stressuð fyrir jólin ætlum við hjónin að fara með unglingana til Kaupmannahafnar í Tívolí á laugardaginn og mun ég skrifa á jólakortin í vélinni. En litla jólastelpan okkar hún Sædís Erla verður hjá ömmu Binnu og bíð ég bara eftir því að hún fari að hafa áhyggjur af því að jólasveinninn komi ekki til með að fínna hana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sætust þessi stelpa, það verður án efa gaman hjá ömmu Binnu á meðan þið jammið í Köben. Enn og aftur.....GÓÐA FERÐ

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 23:20

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Guð hvað er gaman hjá ykkur.  Í ár skrifa  ég bara nýárskort, er ekki í stuð fyrir jólakort.  Góð skemmtun í Köben.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.12.2007 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband