Litla jólabarn

Jæja jólin eru bara alveg að koma, merkilegt nokk. Allt er ljósum skreytt, jólakortin streyma inn um lúguna og inn í inn-boxið í tölvunni minni, en ég er samt ekki enn komin í þetta eiginlega jólastuð. Fólk spyr mig ... "ertu búin að öllu?".. Ég játa því og ég velti því samt alltaf fyrir mér hvað felist í þessu "öllu". En ég er a.m.k. búin að öllu sem ég ætlaði að vera búin að gera 21. desember 2007. Er búin að klára þriðju önnina í háskólanum, kaupa jólagjafir, er að skrifa á jólakortin eru alveg að fara úr húsi, en verða snubbóttari en vanalega, en ég ætla að bæta það upp með jólaannál fjölskyldunnar sem ég set inn á bloggið um jólin. Við  Rituhöfðafjölskyldan fórum svo í jólatívolí í Kaupmannahöfn um síðustu helgi, alveg yndislega ferð sem mun lifa með okkur alla tíð. Elli og krakkarnir eru búin að skreyta smá og setja jólaljós á húsið (enda annars úrskúfuð úr Rituhöfðanum). Við erum að fara á Siglufjörð og getur Sædís Erla ekki beðið eftir því að komast til ömmu og afa á Sigló og er mikil tilhlökkun hjá öllum.

.... en samt, ég er eitthvað svo pollróleg yfir sjálfum jólunum  .... ég átta mig samt ekki alveg á því hvort þetta er bara spennufall eftir skólastressið eða hvort ég sé í alvöru hætt að vera jólabarn Errm..Ásdís Magnea 8 ára 

Ein gömul og góð jólamynd af Ásdísi Magneu þegar hún var bara átta ára með Mola í fanginu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sæl og velkomin heim, gott að ferðin var svona frábær. Ég er viss um að þegar þú kemur "heim" á Sigló þá detturðu í jólagírinn. Annars er ég líka pollróleg og hef einmitt verið að velta þessu fyrir mér "búin að gera allt" allt getur verið svo mismunandi milli ára. Mitt allt í ár er friður, kærleikur og rólegheit. Samvera fyrst og fremst.  Gangi ykkur vel norður og njótið jólanna. Kær kveðja.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 18:22

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

 Presents Under The Tree   taktu þetta með þér norður  :):)

Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 18:52

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Gleðileg jól í Mosó og áfram norður á Sigló.

Vilborg Traustadóttir, 21.12.2007 kl. 22:55

4 identicon

Herdís mín, þetta með jólastressið, jólafílinginn, jóla þetta og jóla hitt, það bara kemur og það kemur frá hjartanu á aðfangadag.......allt annað skiptir ekki máli og alls ekki það sem engu máli skiptir

Góða ferð, hafið það gott og njótið þess að eiga hvort annað og vera saman

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 23:14

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Gleðileg jól og takk fyrir skemmtilegt bloggár :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.12.2007 kl. 01:03

6 identicon

Gleðileg jól kæra vinkona og megi friður jólanna vera með þér og þínum yfir jólin.

Jólaknús frá okkur á Móabarðinu

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 24.12.2007 kl. 15:10

7 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár      

Gunnlaugur B Ólafsson, 24.12.2007 kl. 15:17

8 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

Gleðileg jól vina, til þín og þinna.

Vona þið hafið það yndislegt um hátíðina.

Bjarney Hallgrímsdóttir, 25.12.2007 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband