Flug FI 440 farið til Manchester og meira um New Orleans

Ég vaknaði fyrir allar aldir líkt og hina morgnana í New Orleans og var það fyrsta sem ég gerði að fara inn á Icelandair og kanna hvort Elli og hinir strákarnir hefði komist til Manchester og viti menn,

Flug FI 440 Manchester (MAN)  sem áætluð var 08.00 fór frá Keflavík kl.08.26 og því ekki annað að segja en góða ferð strákar og góða skemmtun á leiknum í dag.

Það er ýmislegt á dagskrá laugardagsins 9. febrúar, já og Stella mín til hamingju með daginn Smile.

Síðasti dagur ráðstefnunnar og vettvangsferðin um New Orleans. Shirley ætlar að koma með mér og munum við fara um borgina með fararstjórum og taka nokkur stopp og skoða ummerki eftir náttúruhamfarirnar 2005. Ég keypti bók í gær sem segir hamfarasöguna í máli og myndum. Þar kom fram að Rauði krossinn hefði unnið mikið og gott hjálparstarf og m.a. að á þeirra vegum hefðu verið 219.500 manns að störfum frá frá öllum fylkjum Bandaríkjanna og einnig frá öðrum löndum. Ég verð nú að viðurkenna að ég nota alltaf tækifærið og spyr þá sem ég hitti hvort Rauði krossinn hafi hjálpað þeim eitthvað. Það kemur þá alltaf eitthvað sérstakt blik í augu fólks sem talar um hvað Rauði krossinn hafi staðið sig vel . Það er svo sem ekki eitthvað sem kemur mér sérstaklega á óvart í þeim efnum, en gamla Rauða kross hjartað tekur samt eitt og eitt aukaslag við þessi svör.

    

mbl.is Veðrið gengið niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Indriðadóttir

það er auðvitað ekki spurning maður gleymir Rauða krossinum ekki svo glatt.  Hafðu það gott.

Guðrún Indriðadóttir, 9.2.2008 kl. 17:36

2 Smámynd: Karl Tómasson

Óttalegt flakk er á ykkur hjónum.

Bestu kveðjur og góða skemmtun kæru vinir frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 9.2.2008 kl. 20:21

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að heyra að Elli komst með strákunum, nú er bara að bíða og sjá hvernig leikurinn fer á morgun.  Hafðu það gott Herdís mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 20:42

4 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Er einhver hætta á að gleyma Rauða krossinum?    Hann gleymir ykkur ekki.  

Marinó Már Marinósson, 9.2.2008 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband