Sædís Erla fer í MA

Sædís Erla sofandi á gamárskvöldi

"Mamma er hlaupársdagur í dag"... var það fyrsta sem fjögurra ára dóttir mín sagði í morgun. Ég játti því og þá sagði hún .... "og er þá ekki frí í leikskólanum?" Hún var sem sé alveg harðákveðin í því að hlaupársdagur ætti að vera lögbundinn frídagur og því er ég sannfærð um að hún fer í MA þegar hennar menntaskólatími kemur.... nema nýi framhaldsskólinn í Mosfellsbæ taki þennan hugleiðingarsið upp líka.


mbl.is Hlaupársdagur er hvíldardagur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Flott hjá Sædísi, auðvitað ætti þetta að vera einn alsherjar skrópdagur.  Leap Year 

Ásdís Sigurðardóttir, 29.2.2008 kl. 18:19

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já nákvæmlega vinkona ... minn hlaupársdagur var frídagur.

Herdís Sigurjónsdóttir, 29.2.2008 kl. 18:23

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Mér þótti alltaf svo skrítið að afi ætti bara afmæli fjórða hvert ár.  En það var víst haldið upp á það daginn áður eða réttara sagt daginn fyrir 1. mars.   

Nú eru bara 19 dagar þangað til að grágæsin fer að koma til landsins frá Bretlandseyjum, svo þar er að koma vor.

Marinó Már Marinósson, 29.2.2008 kl. 22:33

4 identicon

Það er greinilega alltaf nóg að gera hjá þér. Vonandi gengur þetta allt vel. Hér úr snjónum á norðurlandi er líka allt í góðu og allir á skíðum, nema ég sem sit heima og passa ömmustrákinn minn sem ég eignaðist fyrir tæpum 2 mánuðum svo að mamman fáði aðeins að hreyfa sig.

Valgerður M. Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 15:00

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hún er sæt litla frænka mín, maður verður pínu stoltur.

 Bestu kveðjur í Mosó héðan úr Glaðheimum.

Sigurður Þórðarson, 4.3.2008 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband