þegar ég bruddi klaka

Ég man þegar ég var ólétt þá bruddi ég klaka af áfergju og var eins og grjótkvörn... Það var alveg frábært að koma á Vertshúsið til tengdamömmu, en hún átti klakavél. Mikið rosalega var ég fegin eftir á að fékk ekki æði fyrir súkkulaði eða rjómaís. 
mbl.is Skrýtnar kenndir á meðgöngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En fyndið! Ég bruddi líka klaka eins og óð manneskja á meðgöngu. Bar heim úr Nóatúni heilu pokana af ísmolum ... og eitt sinn fór ég í lúgusjoppu, keypti poka og bað manninn um glas af vatni með.... svo seildist ég í pokann sem lá á gólfinu í bílnum og bruddi og bruddi..Daginn eftir að drengurinn fæddist stakk ég uppí mig klaka og bruddi, og fékk þetta ægilega tannakul..... þar með var það búið! hehe...

Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 21:05

2 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Ég var svona líka. Seinna var mér sagt að það stafaði af blóðleysi (járnleysi)

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 28.4.2008 kl. 21:12

3 identicon

Já.. Ég gerði þetta líka bruddi og bruddi ísklaka! og sniðugt..(eða ekki) ég var einmitt mjög járnlítil.... oftar en ekki undir 100...

KV. Barbara (ókunnug)

Barbara Ósk (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 21:57

4 identicon

Ókunnug hér á þessum slóðum, en verð að koma minni reynslu á framfæri. Á 3 börn og var líka alveg snaróð í ísmola, allar meðgöngurnar. Ég bruddi ís alla daga og ef ég ekki átti ís fór ég á veitingarhús bæjarins og keypti nokkra plastpoka af ís. Lagði líf og limi í hættu í alls kyns veðrum, en ef veður var of slæmt át ég snjóinn. Á síðustu meðgöngunni var ég líka alveg óð í að komast í að finna lyktina úr uppþvottavélinni þegar hún var nýbúin að þvo..... bara bilun

Get alveg trúað þessari skýringu með blóðleysið, var alltaf frekar tæp á því.

R.S. (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 23:33

5 identicon

Rakst á þetta blogg út frá fréttinni ;) Ég var nákvæmlega svona á minni meðgöngu, hér voru sko nokkur klakabox fyllt hvern einasta dag, fór með klaka í nesti ef ég þurfti að skreppa eitthvað og allir sem ég heimsótti urðu að gjöra svo vel að eiga nóg af klökum í frystinum! Ótrúlega skrýtin tilfinning að vera með svona rosalega löngun í eitthvað.. alveg stanslaust! Eins og Ásdís segir hér að ofan ætlaði ég að gæða mér á klaka rétt eftir að sonur minn fæddist og lenti í þessu svakalega tannakuli - og hef ekki fundið fyrir klakalönguninni síðan! Enginn í kringum mig hafði heyrt um svona klakagræðgi á meðgöngu fyrr en ég var einmitt mjög lág í járni, áhugavert að lesa þá útskýringu :)

Dagbjört... (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 23:44

6 identicon

Mjög skondið... sit hér komin tæpar 39 vikur bryðjandi ísmolana eins og óð meðan ég kíki á bloggið  Hafði einmitt orð á því við vinkonurnar í hádeginu að ég myndi nú sennilega renna við í búðinni þar sem "bestu" klakarnir fást á leiðinni uppá fæðingadeild þegar þar að kemur... sé mig í anda bryðja  mig í gegnum hríðarnar

Regína (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 19:54

7 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Ég þekkti   konu mjög náið þegar hún gekk með okkar fyrsta barn fyrir rúmlega 30 árum. Þá var enginn dagur í lagi ef hún náði ekki að sporðrenna eins og einum grænum frostpinna.

Gísli Sigurðsson, 29.4.2008 kl. 21:48

8 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Gangi þér vel Regína ....... það er eins víst að þetta hverfi um leið og litli gull (ís) molinn er kominn í heiminn, svo njóttu kikksins.

ÉG var rosalega heppin á síðustu meðgöngunni, því þá átti ég ísskáp með klakavél  og stutt að fara til að ná sér í sjónvarpssnakk. Það er skondið að sjá ykkur öll hér, ég hélt alltaf að ég væri sú eina.

Herdís Sigurjónsdóttir, 29.4.2008 kl. 23:55

9 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

já grænu frostpinnarnir voru góðir og líka harði ananasklakinn (það var hægt að taka frostbita) en stórir kaldir klakar voru lang bestir he he

Herdís Sigurjónsdóttir, 29.4.2008 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband