Fólk fær nýtt tækifæri í lífinu

Það er ljóst að með þessari góðu fundarsókn eru Skagamenn að sýna í verki sinn hug til móttöku flóttamannanna. Guðrúnar Ögmunds formanns flóttamannanefndar sagði að fundurinn hefði verið góður og vegna þess sem á undan er gengið væru Skagamenn trúlega sterkari og er ég sannfærð um að það er rétt. 

Það skiptir máli að samfélagið sé þátttakandi í móttöku flóttamanna og því var ég ánægð þegar ég sá að fjöldi manns hefði þegar óskað eftir því að gerast stuðningsfjölskyldur. Þær skipta sköpum þegar aðstoða á flóttamennina við að samlagast samfélaginu í sínum heimabæ. Ég hef tekið þátt í móttöku flóttamanna. Sumir fóru heim aftur þegar ástandið batnaði þar en aðrir eru góðir og gegnir borgarar og nýlega hitti ég eina fjölskylduna sem blómstrar. 

Við megum ekki gleyma því að um er að ræða fólk, fólk sem verið er að aðstoða og gefa nýtt tækifæri í lífinu.


mbl.is Góður andi á upplýsingafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Sannarlega allra hagur að flóttafólk komist vel inn í samfélagið. Það eru forréttindi að geta veitt fólki nýtt tækifæri. Það eru lika forréttindi að fá að kynnast menningu annarra þjóða. Þetta er því klárlega win,win sem skapast þó af slæmum aðstæðum flóttafólks. Við, hins vegar, berum ábyrgð á að gera það besta úr þeim aðstæðum.

Vilborg Traustadóttir, 27.5.2008 kl. 08:59

2 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

Fegin að búið er að landa þessu máli farsællega á Skaganum - gott fólk sem býr þar og var maður nú í hálfgerðu losti þegar fyrstu fréttir komu um að flóttafólkið kæmi jafnvel ekki þangað - oft þarf fáa til að skemma fyrir öllum hinum - Áfram ÍA  og Skagamenn

Og takk innilega fyrir góðar kveðjur, það er sko ekki leiðinlegt að fá svona góðar einkunnir og ég bjóst bara aldrei við þessu út af lesblindunni minni en ég ákvað bara í upphafi að læra og læra, lesa og lesa þangað til allt færi inn - og það hefur greinilega skilað árangri - það borgar sig að læra vel

Bjarney Hallgrímsdóttir, 27.5.2008 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband