Stórdansleikur á Ketilási á laugardaginn

Næsta laugardag verður haldinn stórdansleikur á Ketilási, félagsheimilinu "mínu" í Fljótunum. Ég hef farið á fjölmörg böll á þessum stað, en aldrei með hljómsveit kvöldsins Stormum. Enda er ég svo ung að ég kemst ekki inn, þyrfti að vera fædd "63. En það er þó búið að lofa mér því að ég kæmist inn í fylgd með fullorðnum, spurning hvort mamma og pabbi eru til í að koma með lillunni sinni LoL. En svo er það blessaður glugginn sem stelpurnar, Vilborg og Magga Trausta og Gugga nefndu í morgun. En ég held samt að helv... glugginn hafi hlaupið og þori ég a.m.k. ekki að treysta því að komast inn um hann.

Hver veit nema maður nái ballinu á laugardaginn, það stefnir allt í það að við komumst á Sigló á morgun, en við sjáum bara til.

Hér er heimasíða ballsins, sem búið er að plana frá því í vetur.

Flott vinna kæra Ketilásnefnd, vonandi sjáumst við á laugardaginn.

Allt sem við viljum er friður á jörð

Laugardagskvöldið 26. júlí mun hljómsveitin Stormar leika á dansleik á Ketilási í Fljótum, öll gömlu góðu lögin.

5 - Stormar(1)

 

 

 

 

 

 

 

Aldurstakmark 45. ár (nema í fylgd með fullorðunum)

Húsið opnar klukkan 21.30

Dansað verður fram eftir nóttu

Missið ekki af "comeback " dansleik Hippakynslóðarinnar

 

Tjaldstæði með snyrtingu er á Ketilási og er frítt þessa helgi

Nefndin 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mikið held ég að þetta verði gaman, veit ekki hvernig mér mundi líða ef ég kæmi á sveitaball heima t.d. í Skjólbrekku eða Ljósvetningabúð, það yrði skrítið.  Góða skemmtun og vonandi verður þú með skemmtilegar myndir.  Hafðu það gott mín kæra, ég verð víst á Borgó næstu helgi.  Knús

Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 20:54

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Now we are talking!!! :-) Ég skal opna gluggann vel!!! ;-)

Vilborg Traustadóttir, 23.7.2008 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband