Svínaflensan lögð af stað í leiðangur

Svínainflúensan virðist vera lögð í hann um heiminn. Góðu fréttirnar eru þær að til eru lyf sem virka á svínaflensuna, ólíkt fuglaflensunni sem óttast var að breiddist út og búið er að fylgjast með á liðnum árum.

Það eru mörg lönd sem hafa viðbúnað og viðbragðsáætlanir til að bregðast við farandi og er Ísland eitt þeirra. Ég tók þátt í mótun þeirrar áætlunar þegar ég vann hjá Rauða krossinum og fylgir því mikið öryggi fólgið í því að vita af því að aðilar eru búnir að móta samhæfingu og samstarf ef til faraldurs kemur.

En þetta er þó viðráðanlegri stofn og er ég því bara nokkuð björt yfir ástandinu og óttast ekki að heilbrigðisyfirvöld og almannavarnir ráði ekki við verkefnið ef til þess kemur.

Hér eru frekari upplýsingar um pestina http://www.influensa.is/pages/1433

 


mbl.is Of seint að hindra útbreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband