Í túninu heima í Mosfellsbæ - bæjarhátíð með eitthvað fyrir alla

Í túninu heima

 

 

 

 

Framundan er bæjarhátíðin okkar Mosfellinga, Í túninu heima. Dagskráin er fjölbreytt og eitthvað fyrir alla. Að neðan eru taldir upp helstu viðburðir hátíðarinnar. Dagskrána í heild sinni má nálgast hér.

Fimmtudagur 26. ágúst
Mosfellsbær skreyttur, heimaleikur í fótbolta á Varmárvelli, unglingadansleikur í Hlégarði

Föstudagur 27. ágúst
Setningarhátíð á Miðbæjartorgi, karnivalskrúðganga að Ullarnesbrekkum, brekkusöngur, varðeldur. Tívolí á Hlégarðstúni.

Laugardagur 28. ágúst
Hátíðardagskrá í íþróttahúsi, danskir dagar í Hlégarði, dönsk veisla og Bogomil Font. Sultukeppni og markaður í Mosskógum í Mosfellsdal og markaður í Álafosskvos, Boot Camp keppnin, fornvélasýning - elsta flugvél landsins til sýnis á Tungubakkavelli - karamellukast, götugrill. Rauði krossinn með örnámskeið í skyndihjálp og endurlífgun á hátíðarsviði kl. 15.
Stórtónleikar á Miðbæjartorgi: kl. 20.30-21.00: Meðlimir Memfismafíunnar hætta sér úr fylgsnum sínum til að leika og syngja lög af barnaplötunni sívinsælu "Gilligill" og hinni flunkunýju "Fágunarskóli prófessorsins á Diskóeyju". Kl. 21-23: Baggalútur, Hafdís Huld, Steindi Jr, Ingó og Hreindís Ylfa og félagar. Listflug í upphaf tónleika og flugeldasýning í lokin. Stórdansleikur með Gildrunni í Íþróttahúsinu að Varmá að loknum tónleikum. Tívolí á Hlégarðstúni.

Sunnudagur 29. ágúst
Danskir dagar í Hlégarði, opið hús á Bakkakotsvelli, leitin að magnaðasta hundinum í Mosfellsbæ, atorkuhlaupið, hátíðardagskrá og kóraveisla í Íþróttahúsinu að Varmá, sölu- og sýningarbásar, Óperuídýfurnar Davíð og Stefán, stofutónleikar að Gljúfrasteini. Tívolí á Hlégarðstúni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góða skemmtun kæra vinkona.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.8.2010 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband