Nýsköpunarverðlaun á sviði almannavarna og öryggismála

SIS_Stjornsysla_sveitarfel_190x160

Nýsköpunarverðlaun í opinberum rekstri voru í fyrsta skipti veitt í dag. Að verðlaununum stóðu fjármálaráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það gladdi mig mjög að sjá að bæði Almannavarnanefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fengu nýsköpunarverðlaun, að öðrum vinningshöfum ólöstuðum. Það veit á gott

Nýsköpunarverðlaunin 2011 hlaut lögreglustjórinn á Hvolsvelli og almannavarnanefndin fyrir verkefnið Skipulag rýminga vegna jökulhlaupa sem fylgja eldgosum í Kötlu og Eyjafjallajökli. Alls bárust 40 tilnefningar til verðlauna og voru 18 verkefni valin í úrslit og voru þrjú verkefni frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu; Breytt skipulag löggæslu á höfuðborgarsvæðinu, Virkir brotamenn - eftirlit með síbrotamönnum og aðgerðir til að draga úr hegningarlagabrotum og Notkun samfélagsmiðla (Facebook og Twitter) á sviði löggæslu.

Verðlaunin vegna Kötluáætlunarinnar eru verðskulduð að mínu mati. Ég gleymi því örugglega aldrei þegar ég var stödd á blaðamannafundi eftir að eldgosið hófst á Fimmvörðuhálsi, vansvefta eftir næturvinnu með Rauða krossinum. Rýming næturinnar gekk vel og sat Kjartan lögreglustjóri fyrir miðju, pollrólegur og sagði... "Í síðustu viku héldum við íbúafund og fórum yfir rýmingaráætlunina". Ég man vel að þá hugsaði ég. Ætli þetta hefði gengið jafn vel í nótt ef ekki hefði verið búið að vinna þessa vinnu.

Í desember árið 2002 óskaði almannavarnanefndin með Kjartan Þorkelssoní fararbroddi, eftir því við Almannavarnir ríkisins (nú almannavarnadeild ríkislögreglustjóra) að unnið yrði hættumat og áhættugreining gerð á svæðinu. Ríkisstjórnin veitti aukafjárveitingu til verksins. Á grundvelli hættumatsins sem gefið var út á miðju ári 2005 var viðbragðsáætlun unnin og hún æfð stórri vettvangsæfingu sem kölluð var Bergrisinn 2006. Ég tók þátt í þessari æfingu bæði sem fulltrúi í Samhæfingarstöð almannavarna og einnig bakskipulagi sem stýrði æfingunni. Viðbragðsáætlunin hefur markvisst verið kynnt íbúum, sem margir hverjir hafa hlutverk í rýmingaráætluninni.

Forsvarsmenn almannavarna um allt land ættu að taka sér þessa vinnu kollega sinna sér til fyrirmyndar. Það er mikilvægt að hafa klára áætlun um hver gerir hvað á neyðartímum og hefur Kötluáætlunin þegar sýnt að hún virkaði þegar á reyndi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk verðlaun fyrir verkefni sitt Notkun samfélagsmiðla (Facebook og Twitter) á sviði löggæslu. Frábært verkefni og góð leið til að koma skilaboðum á framfæri með skjótum hætti og jafnframt til unga fólksins sem að öllu jöfnu er lítið að glugga í blöð eða hlusta á fréttir. Tenglar á lögregluna á samfélagsmiðlunum eru www.facebook.com/logreglan og www.twitter.com/logreglan.

Að mínu mati hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með störfum Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra frá því að hann hóf störf. Hann hefur verið óhræddur við að fara nýjar leiðir og er búinn að endurskipuleggja embættið með það að markmiði að skila betri árangri í löggæslu og jafnframt auka sýnileika, þrátt fyrir minn rekstrarframlag til embættisins. Ég tel það hafa tekist og bíð spennt eftir nýrri lögreglustöð í Mosfellsbæ sem á að rísa við Skarhólabrautina.

Upplýsingagjöf til íbúa skiptir miklu máli og hefur lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tekist vel upp í þeim efnum, bæði hvað varðar samvinnu við íbúa og gagnvirka upplýsingagjöf við borgarana.

Húrra fyrir ykkur öllum og hjartanlega til hamingju með verðlaunin.


mbl.is Rýmingaráætlun fékk nýsköpunarverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 3.11.2011 kl. 19:41

2 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Ég fagna endurkomu þinni á bloggið kæra Herdís! Mér finnst þú góður bloggvinur og samherji. Megir þú blogga sem lengst !

Með góðri kveðju frá Siglufrði, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 5.11.2011 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband