Hin mosfellska Gildra

Þegar ég flutti í Mosfellsbæ vissi ég af hljómsveitinni Gildrunni sem Mosfellingar voru eðli málsins samkvæmt stoltir af, enda mosfellsk og ein helsta rokkhljómsveit landsins. Elli hafði eitthvað verið að plokka bassa með hluta þeirra um árið og því hafði hann sérstakar taugar til grúppunnar.

gildran_i_10_ar

Hljómsveitina Gildruna skipa þeir Birgir Haraldsson söngvari, Þórhallur Árnason bassaleikari, Karl Tómasson vinur minn trommari og Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari. Einnig spilar Vignir Þór Stefánsson með þeim á hljómborð.

Mér hefur alltaf fundist þeir frábærir, með sinn skemmtilega tón og Biggi náttúrulega með sína ótrúlegu rödd og kraft og er Vorkvöld í Reykjavík eitt af mínum uppáhalds. Gildru-Mess tímabilið var líka skemmtilegt með öllum Creedence Clarwater Revial lögunum. 

Ég fór á afar eftirminnilega tónleika með þeim í Hlégarði í maí í fyrra, sem þeir héldu til að fagna 30 ára samstarfi. Þvílíka stuðið og enduðu margir uppi á borði að dansa og þar á meðal ég.  Þetta myndband var tekið upp á tónleikum og langar mig til að leyfa ykkur sem ekki voruð á staðnum að njóta þess. http://youtu.be/OKfSxYuMS8Q

Það er óhætt að fagna því að þeir séu farnir að spila aftur og hver veit... ég sá ég að þeir verða á SPOT í Kópavogi í kvöld.

Myndin hér að ofan var tekin þegar þeir fögnuðu 10 ára starfsafmæli og fékk ég hana lánaða hjá Kalla Tomm.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér finnst þeir alveg frábærir.  Kær kveðja til þín duglega kona

Ásdís Sigurðardóttir, 5.11.2011 kl. 12:50

2 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Ágæta Herdís, þetta var fræðandi pistill hjá þér! En nú er ég farinn aðhugsa til landsfundar Sjálfstæðisflokksins, sem ég vona að verði góður og spennandi. Ég tel, að BB verði oná en HB má samt vel við una, þar sem hún verður að vinna BORGINA aftur af hallærisliðinu þar.

Bestu kveðjur frá Sigló, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 16.11.2011 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband