Vinnurðu á Núinu - Þriðjudagur

Í einum kassanum er vinningur!

Mér datt í hug í morgun þegar ég fór inn á póstinn minn hvort maður væri ekki að viðhaldahalda spennufíkninni með því að taka þátt í Núinu alla virka daga. Svona líkt eins og hvað ætli margir skoði bloggsíðuna mína í dag?

Á heimasíðu Núsins kemur fram:

Núið er einfalt og fljótlegt: Alla virka daga færðu einn tölvupóst frá Núinu sem inniheldur fimm kassa. Í einum kassanum er glaðningur. Þú velur einn kassa og til að sjá hvort þú hafir hlotið glaðning svararðu vefauglýsingu.

Núið er skemmtilegt, það kostar ekkert og allir geta skráð sig.

Hvað mig sertir þá opna ég póstinn minn og vel mér kassa. Ég vel alltaf sama kassann, bara gamla góða íhaldssemin og svo er að svara lífsstílsspurningunni.... má bjóða þér eða hvaða land höfðar best til þín ....ég vel yfirleitt nei takk og svo ....klikk.....

Því miður, enginn glaðningur í dag. Gangi þér betur næst kom í dag..... en stundum kemur afslattamiði...út að borða á Vín og skel...brúnkumeðferð.....en aldrei kemur utanlandsferðin!

Hvað ætli verði um gögnin? Hvernig ætli prófíllinn minn sé?

Miðaldra kona, sem afþakkar allt og neitar að taka þátt í öllu ... nei bíddu við!...Barcelona er greinilega veikleiki..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur H. Bragason

Ég ehf nu notað nokkra vinninga sem ég hef fengið á núinu, fínt t.d. að taka vinnufélagann með í hádegisverð og nota 2 fyrir 1 vinningin

Nýjasti vinningurinn er einmitt 2 fyrir 1 á Hereford steikhús

Guðmundur H. Bragason, 27.3.2007 kl. 12:22

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

 Var þetta hádegisverðarboð ..

ef þú svitnaðir núna Gummi minn, þá getur þú verið pollrólegur því ég verð ekki í standi til að fara út að borða á næstunni... Ég verð bara hérna heima...og bíð eftir utanlandsferðinni..... og ef það klikkar þá fer ég bara í brúnkumeðferð..

Herdís Sigurjónsdóttir, 27.3.2007 kl. 12:38

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er ein af þeim sem er í núinu og hef einmitt verið að velta þessum reglum fyrir mér. Ég ýti alltaf á sama kassann og svo vel ég nei, reyndar stundum já til að vita hvort ég fái frekar glaðning, er svona að rannsaka kerfið hjá þeim, en ég fæ bara svona parta glaðninga eins og þið, eitthvað sem ég þarf að borga fyrir, bara ekki fullt verð, en á endanum mundi ég eyða pening sem ég ætlaði ekki að eyða. Held bara að ég fari að hætta þessu.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.3.2007 kl. 14:01

4 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Þetta er bara til þess, að fá fólk til að eyða meiri monney-peningum. 

Sniðugt fyrir þa´sem eru að selja og stundum þyrir þann,s em fær kostaboð.

 Er svo ,,steiktur" að ég tel allt svona hálfgerðan óþarfa.

kveðjur

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 27.3.2007 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband