Siglfirðing í samgöngumálin

428898A

Já merkilegt með þessa Siglfirðinga, þeir eru alls staðar, eins og maðurinn sagði um árið "Siglfirðingum fækkar ekkert þeir búa bara annars staðar." Ég hef stundum sagt að það hafi verið pólitík í kalda vatninu því á Laugarveginum, þessari litlu götu bjuggu auk mín, Kristján L. Möller, Sigríður Anna Þórðardóttir, Birkir jón Jónsson og Illugi Gunnarsson.

Ég var nokkuð viss um að Kristján Lúðvík Möller yrði ráðherra, en var ekki alveg búin að gera það upp við mig hvaða ráðuneyti hann fengi. En samgönguráðuneytið varð það og afhenti Sturla Böðvarsson honum lyklavöldin í dag. Hann Kristján er líka ráðherra sveitarstjórnamála eftir breytingar, en flytjast sveitarstjórnamálin þangað frá félagsmálaráðuneytinu. Hann hefur góða reynslu af sveitarstjórnarmálum sem mun nýtast honum vel í nýja starfinu.


mbl.is Kristján: Samgönguráðuneytið skriðþungt skip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvís. Ég er nú bara nokkuð ánægð með þessi býtti. Hafðu það gott.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.5.2007 kl. 21:41

2 Smámynd: Ágúst Dalkvist

Það verður gaman að sjá hvernig Kristján á eftir að standa sig í þessu embætti. Hef haft hvað mestar mætur á honum af fráfarandi stjórnarandstæðingum og vænti mikils af honum

Ágúst Dalkvist, 24.5.2007 kl. 22:34

3 identicon

 Hæ hæ bjuggu þau ekki líka öll sömu megin og þú við þá góðu götu?

Er rosa sátt við að Stjáni skuli hafa fengið þetta embætti hann á eftir að standa sig vel. Og er í réttum flokki :)

Guðný Gunnl (IP-tala skráð) 27.5.2007 kl. 19:11

4 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Jú Guðný, mikið rétt hjá þér, en ég held að Stjáni Möller hafi samt mest drukkið vatnið úr rauða krananum . Já ég er alveg viss um að hann á aftir að standa sig vel.

Herdís Sigurjónsdóttir, 28.5.2007 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband