Súperskátinn minn floginn

Ásdis Magnea

Það var heldur glatt yfir skátanum mínum í nótt þegar haldið var til Keflavíkur, enda stefnan sett á Jamboree í Englandi. Þetta verður mikil upplifun fyrir alla sem verða á staðnum og er ég að vonum glöð með að í þessum 40.000 skáta hópi í Englandi, eigi Rituhöfðafjölskyldan sinn fulltrúa.

Undirbúningur hefur staðið lengi og eru Mosverjar eitt öflugasta skátafélagið á landinu og er því stór hópur sem fer frá þeim og mikill hugur í skátum. Búið að fjárfesta í ýmsum viðlegubúnaði sem nýtist stóra skátanum okkar vonandi alla ævi. Ég er ánægð með að fyrir undirbúning var hún að missa áhugann, en nú virðist vera búið að blása lífi í glæðurnar og ætla ég að gera mitt til að halda eldinum lifandi, enda skátahreyfingin frábær félagsskapur. Það var gaman að sjá í fréttinni sem ég las í mogganum í morgun, um að margir forstjórar stórfyrirtækja ætluðu að taka fullan þátt í mótinu, enda "einu sinni skáti, ávallt skáti".

Ég vona svo sannarlega að allt gangi að óskum hjá þeim. Ég heyrði í gær að mótssvæðið væri þurrt og það væri ágætis hiti. Aðeins hefðu farið yfir stuttir skúrir og vona ég bara að það verði ekki verra en það á mótinu sjálfu. En komi til flóðs, er stóri skátinn minn þá a.m.k. í rétta félagsskapnum og ef hún er eitthvað lík móður sinni yrði smá björgunarfjör bara til að gera hlutina enn eftirminnilegri.

 

 


mbl.is Skátarnir fljúga til Englands í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Herdís

Gaman af þessari færslu þinni sem ég datt inná af mbl.is.  Dóttir mín Guðrún er líka að fara á Jamboree þannig að a.m.k. tveir "Siglfirðingar" verða á svæðinu og að sjálfsögðu ávallt tilbúnar eins og sannir skátar.  Bestu kveðjur úr Borgarfiðinum. 

Inga Margrét  '66.

Inga Margrét Skúladóttir, Borgarnesi (IP-tala skráð) 27.7.2007 kl. 11:05

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Heil og sæl Inga Margrét

Já og Anna Guðlaug hennar Konnýar líka ... það verður ekki logið upp á þessa Siglfirðinga...þeim er ekkert að fækka, þeir búa bara annars staðar .

Herdís Sigurjónsdóttir, 27.7.2007 kl. 11:10

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð setning  hjá þér, ekkert að fækka, búa bara annarsstaðar. Það er von að veðrið verði gott, hér fer að rigna þannig að þá ætti að rigna minna í Englandi.  Vonum það besta fyrir skátana.  Á að útilegast um helgina?

Ásdís Sigurðardóttir, 27.7.2007 kl. 11:30

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Góðar óskir héðan.......

Vilborg Traustadóttir, 27.7.2007 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband