Fyrsti skóladagurinn

Þá er fyrsti skóladagurinn að kveldi kominn og verð ég að segja að veturinn leggst bara vel í mig.

Í morgun fór ég í fyrsta tímann í þáttum í umhverfis og auðlindafræði og munum við fara mikið í regluverk og tilskipanir er tengjast umhverfismálum. Ein stór ritgerð og fjórar litlar, hópverkefni og nokkur minni verkefni þannig að ekki verður maður verkefnalaus í vetur. Í bekknum eru fleiri Íslendingar en í fyrra og líst mér vel á hópinn. Á morgun byrja ég svo í vistfræðinni og siðfræði náttúrunnar í næstu viku.

Ég fór og sótti stúdentakortið og líka strætókortið og hver veit nema maður fari bara að taka út þjónustu Strætó í vetur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að vera byrjuð trúi ég.  Væri alveg til í að lesa eitthvað í fjarnámi í vetur, ætla að kíkja á námskeið ofl. svona online.  Hvað ertu lengi með strætó heiman frá þér og í skólann??  kær kveðja til þín og þinna.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.8.2007 kl. 22:54

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Ætli ég sé ekki svona hálftíma, veit það ekki alveg . Fjarnámið er alveg frábært. Ég heyrði í gær að Versló væri með flott námskeið í fjarnámi og veit ég af konum sem hafa verið í málanámi þar. Það er svo margt skemmtilegt hægt að gera

Herdís Sigurjónsdóttir, 29.8.2007 kl. 08:07

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æðisleg mynd sæta skvísa.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.8.2007 kl. 14:14

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hin var flottari.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.8.2007 kl. 14:26

5 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

OK þá skipti ég aftur

Herdís Sigurjónsdóttir, 29.8.2007 kl. 15:42

6 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Jæja - nú er hægt að kalla þig Duglegu Dísu - fyrir allan peninginn!

Ánægð með þig!

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 29.8.2007 kl. 18:17

7 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Á þetta eitthvað skylt við nýju "námsmannalegu" myndina af þér??  Til hamingju með daginn..

Vilborg Traustadóttir, 29.8.2007 kl. 18:41

8 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Þú rúllar þessu upp.

 ps.  Býður Mósó ekki frítt í strætó fyrir skólafólk? 

Marinó Már Marinósson, 29.8.2007 kl. 23:11

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ þú ert krútt.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.8.2007 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband