Meira um eiturlyf - pfff þetta eru bara ellur?

180px-Ecstacy_monogram

Í gær tjáði ég mig um stóra eiturlyfjamálið og lýsti yfir ánægju minni með árangur lögreglunnar, og hryllingi yfir því magni eiturlyfja sem fannst, sem klárlega kallaði á framleiðslu nýrra fíkla.

Ég fékk athugasemdir frá manni, Geir, sem segir þetta ekkert mál, þetta séu bara ellur og talar fyrir því að lögleiða sölu eiturlyfja og talar um að hægt sé að neyta eiturlyfja í hófi líkt og með vín. 

220px-MDMA-enantiomers-3D-balls

Ég hef á undaförnum árum talað við ungt fólk sem segir neyslu á e-töflum og hassreykingar með öllu skaðlausar og hef ég haft nokkrar áhyggjur af því viðhofi. En eftir að hafa fengið þessar athugasemdir frá Geir fór að velta því fyrir mér í framhaldinu hvort þetta væri útbreitt viðhorf meðal ungs fólks í dag og ákvað að skrifa aðra færslu um eiturlyf og spyrja ykkur hin, hvað segir fólk í ykkar nærumhverfi um a) skaðsemi eiturlyfja og notkun og  b) lögleiðingu á sölu eiturlyfja?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Herdís, að sjálfsögðu eigum við aldrei að lögleiða sölu eiturlyfja, alls ekki og ég kem aldrei til með að breyta skoðun minni á því.

Menn finna sér alltaf leiðir til að ná í efni, sama hvort það er læknadóp eða eitthvað annað.  Við eigum ekki að auðvelda viðkomandi að ná sér í efni, alls ekki. Þetta er hræðilegur heimur og harður. Þetta snýst ekki bara um rétt neytandans þ.e. að hann fái að velja hvort hann fái að vera í neyslu í friði eða ekki. Þetta snertir okkur öll og það er ekkert gott sem hlýst af þessari neyslu, sama hvað dóp það er sem neytt er. Þetta er vandmál og það vaxandi vandamál !

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 21:35

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já vinkona mikið rétt. Ég var einmitt á fundi hjá Rannsóknum og greiningu áðan þar sem fram kom að þau 5% ungmenna sem eru verst farin af neyslu, eru mun dýpra sokkin en þessi sömu 5% fyrir 10 árum síðan...eigurlyfjaheimur versnandi fer.

Við verðum að kenna börnunum okkar að lifa í þessum heimi og hafa þor til að segja nei.

Herdís Sigurjónsdóttir, 25.9.2007 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband