Háðungaverðlaun Nóbels

Ég var nú ekki alveg að ná þessari frétt um samkynhneigð óvinahermanna. Er verið að meina að þegar hermaður X hittir hermann Y úr hinu liðinu þá skjóta þeir ekki hvorn annan, heldur fyllast óviðráðanlegri kynlöngun til hvors annars? Er það ekki bara fínt? En kannski vandamál í sjálfu sér ef aðeins annar hermaðurinn verður fyrir samkynhneigðarsprengjunni, því þá er eins víst að hinn myndi skjóta. En spurning hvaða aðferð vísindamennirnir hafa beitt við þessa rannsókn?

En ég næ því alveg að verðlaun hafi fengist fyrir þetta með kúadelluvanilluna og stinningarlyfið og hamstrana,  ekkert smá afrek að láta sér yfir höfuð detta það í hug LoL.


mbl.is „Samkynhneigðarsprengja" hlýtur Ig Nóbelsverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér er augljóslega verið að tala um hermenn í sama liði, en ekki mótherja!

Bjarni (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 11:26

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Ja há þú segir nokkuð Bjarni, það er nefnilega ekkert augljóst í þessu orðalagi. Hefði þá ekki verið réttara að segja hermenn í stríði, eða hermenn á vígvelli, en ekki óvinahermenn. Óvinir hvers???

Herdís Sigurjónsdóttir, 5.10.2007 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband