Gummi Fylkis friðardúfa

Gummi að taka fuglaprófið á Seyðisfirði

Ég fór inn á síðuna hjá Gumma félaga mínum Fylkis áðan og las síðustu viku. Hann starfar við friðargæslu í Bosníu og fer ég vanalega inn á síðuna hans daglega og kvitta (annars er maður tekinn í bakaríið) og les um það sem á daga hans hefur drifið. Hann tekur líka svo skemmtilegar myndir sem gaman er að skoða.

Í síðustu viku (áður en ég fékk Reykjavíkurlistamartröðina) þá spurði ég hann að því hvaða fugl hann hefði verið greindur í flugslysaæfingahópnum, en höfum við bæði starfað í honum. Þetta fuglapróf er svona karaktergreining og er fólk greint sem fálki, dúfa, páfugl og ugla. Ég er páfugla-fálki, Bára fálki, Jói Thor páfugl, Guðbjörg páfugl og Margrét Blöndal líka, Kristján Torfa ugla, Víðir var Geirfugl, Rögnvaldur dúfa og flestir slökkvararnir ef ég man rétt, en Árni Birgis frændi minn páfugl páfugl páfugl. Gummi tjáði mér að hann væri dúfa og væri meira að segja með tattóveraða dúfu á handlegginn. En fyrst hann vinnur við friðargæslu, er hann þá ekki friðardúfa?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sæl páfuglinn minn. Gott að heyra frá þér. Aldeilis nóg að gera. Ég er að öryrkjast á fullu, verst hvað ég get verið stutt í tölvunni í einu og þreytist mikið, en það gengur mikið á í heilabúinu á mér. Hafðu það sem allra, allra best og gangi þér vel í öllum þeim verkefnum sem þú ert í. Knús í Mosó

Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 18:40

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Varstu ekki bara áfallafugl í síðustu viku?  Lífið er nú bara blómabeð.

Marinó Már Marinósson, 18.10.2007 kl. 21:32

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Ég er örugglega hæna!

Vilborg Traustadóttir, 18.10.2007 kl. 21:47

4 identicon

Mín er víst hreinræktuð dúfa.............:)

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 21:19

5 identicon

Svo þetta er málið.  Ástæðan fyrir því að þú kvittar ekki hjá mér er að ég hef ekki kvittað hjá þér, þó þú hafir verið að skrifa um mig.  Það staðfestist hér með að ég er dúfa og ef farið er í orðaleik eins og með herDísi Sigurgrímdsdóttur þá er hægt að segja að ég sé friðardúfa en miðað við mitt vaxtalag þá fer þessi friðardúfa ekki á loft.  Friðardúfan í Sarajevo.   p.s.  spurning hvort ég sé ekki frekar friðarstrútur.........GF

Friðardúfan (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband