Stelpurnar einar í kotinu

Við Ásdís Magnea vorum að koma úr bíóferð, eftir maraþon heimaprófsdag hjá mér og náttúrufræðilærdómsdag hjá Ásdísi. Að vísu svaf heimasætan fram að hádegi og lagði sig svo aftur seinnipartinn og er að fara að sofa, en hún verður þá a.m.k. úthvíld og fín  samræmdu prófunum eftir helgina LoL. Þetta var fínn dagur hjá mér hér við stofuborðið og held ég að að baki sé svona 1/3 af prófinu og enn nokkrir dagar til stefnu. Ég er bara svo hræðilega skipulega óskipulögð og þarf að vinna í öllum prófspurningunum í einu, en svona er ég bara og svo allt í einu smellur þetta saman, ég veit það alveg.

Ég missti af þingi umhverfisfræðinga í dag, en bara næst! Mig langaði líka til að fara í Perluna í dag, en bara næst! En ég ætla samt að taka mér smá frí og skella mér í Perluna á morgun og skoða vistvænan lífstíl.


mbl.is Umhverfisviðurkenningar afhentar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilegt sumar og gangi þér vel á lokasprettinum. Þó ótrúlegt megi virðast þá klárast þetta allt að lokum. Mér fannst mjög skrítið þegar 4 ár voru liðin og ég allt í einu búin með KHI.  Léttir en samt líka söknuður. Er reyndar farin að huga að meira námi og nú í Háskólanum á Akureyri, en þetta kemur allt í ljós.

Kveðja að norðan

Valgerður

Valgerður M. Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 11:06

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Sæl skvís, takk takk, alltaf gaman að fá kveðjur frá Dalvík .

Herdís Sigurjónsdóttir, 26.4.2008 kl. 22:31

3 identicon

Ef það hentar þér best að vinna í öllum spurningunum í einu, þá það, þú rúllar þessu upp darling eins og öllu öðru sem þú tekur þér fyrir hendur. Haltu áfram að læra.......hangs er ekki í boði!

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband