Almannavarnir svo sannarlega ekki að ástæðulausu

Hér á landi elds og ísa er mikilvægt að hafa gott almannavarnakerfi sem bregst hratt og fumlaust líkt og mér hefur sýnst hafa verið í dag. Kerfi sem samanstendur að vel þjálfuðu fólki sem getur aðstoðað þolendur líkt og í dag. Ég viðurkenni alveg að ég átti pínulítið bágt milli kl. 4 og 6, en ég hef náttúrulega verið á vaktinni í nærri áratug svo það er ekki nema von að almannavarnahjartað hafi slegið örar of löngun til að aðstoða verið sterk.  En svo rann æðið af mér og ég fór bara salla róleg á grænmetisnámskeiði mitt, alveg slök og hlakka til að fara með skólafélögunum í fyrramálið í þjóðgarðanámskeiðið og vera yfir helgina á Höfn.

Það hefur verið góð tilfinning að fylgjast með utan frá í dag eftir að hafa verið í miðri hringiðunni árum saman. Það er ljúft að sjá að neyðarvarnakerfið virkar og eru nú tugir ef ekki hundruðir starfsmanna og sjálfboðaliða að störfum við að aðstoða þolendur á Suðurlandi.

Ég gat nú samt ekki annað en hlegið þegar ég var stödd í miðju moldarbeðinu í Mosfellsdalnum að gróðursetja grænmeti þegar ég fékk sms ið úr E-9 "ég er hér hvar ert þú?" LoL.....

hstalstod

Gangi ykkur vel í hjálparstarfinu kæru félagar.


mbl.is Tjöld við grunnskóla á skjálftasvæðunum í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Indriðadóttir

heldur þú ekki að aðrir geti reddað þessu góða ferð á Höfn

Guðrún Indriðadóttir, 29.5.2008 kl. 23:03

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

he he Rúna, hvað hefur þú oft heyrt mig segja oft "kerfi má ekki byggja á einstaklingum"  og "ef þið hafið annað hlutverk í almannavarnakerfinu getið þið ekki verið lykilaðilar hjá Rauða krossinum" ..... Ég hafði ekki nokkrar áhyggjur af því að þetta gengi ekki vel .

Herdís Sigurjónsdóttir, 30.5.2008 kl. 07:29

3 identicon

Ég sé að Rauða kross hjartað fer á fleygiferð hjá fleirum en mér :) Hef setið fyrir framan tölvuna og fylgst vel með. Held að ég sé meira upplýst en fólkið mitt á Selfossi ! Frétti af þér í moldarbeðinu í gærkvöldi því ég var líka í beinu sambandi við E-9. Segðu svo að við séum ekki inní hlutunum :) Góða ferð á Höfn og skemmtu þér vel.

Anna danska (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 08:19

4 identicon

Þú þarna "Stríðs-Dís " og "hálf-sysir" ég bara saknaði þín brjálæðislega í gær og auðvitað varð ég að láta vita af mér að hér væri allt í orden þar sem ég ( hinn helmingurinn af þér ) var hér og þú þar. gott þú náðir að róa ( eða drepa niður ) " ég er ómissandi " frumuna.

Gulla (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 09:56

5 identicon

Mikið þykir mér alltaf vænt um ykkur allar sem hér hafa kvittað á undan mér

Ég fékk líka svona sms en ég bara beið róleg heima......og beið...datt í hug að hringja og spyrja......á ég að koma? Ennnnnnnnnnn, nei ég gerði það ekki, mín alltaf að læra að það eru fleiri til en ég. Svo kom kallið og þá hljóp mín að sjalfsögðu af stað, nema hvað?

Já, við eigum frábært kerfi, þegar við notum það og þegar við notum það rétt.

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 31.5.2008 kl. 14:27

6 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Oh mikið eruð þið yndislegar allar saman. En eftir helgina fer ég að vinna í jarðskjálftamálunum, í tengslum við nýja lífið mitt og er það meiriháttar .

Námskeiði er líka meiriháttar og erum við í miklum jöklaferðum alla daga .

Herdís Sigurjónsdóttir, 1.6.2008 kl. 07:44

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvís.Allir sem komið hafa að málum hér hafa staðið sig frábærlega. Við vorum á góðum fundi hérna í dag, nauðsynlegt og mikil hjálp að fá.  Knús frá okkur.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.6.2008 kl. 19:35

8 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Hugsaði  til þín þegar við vorum á kafi í skipulagningunni.  

Marinó Már Marinósson, 1.6.2008 kl. 23:08

9 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Ég sá þetta greinilega í bollanum þínum á UZbója. Tveir snarpir jarðskjálftar. Sem sagt einn eftir!!! Er að fara til Hveragerðis á morgun með mömmu dauðhrædda með mér.....að kaupa blóm og matjurtir...

Vilborg Traustadóttir, 2.6.2008 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband