Ný lög um almannavarnir hafa tekiđ gildi

Í gćr 20 júní tóku gildi ný lög um almannavarnir sem samţykkt voru á síđasta starfsdegi Alţingis í vor. Ţađ var mikill léttir ađ sjá ađ lögin vćru í höfn ţví meistararitgerđin mín "verkaskipting ríkis og sveitarfélaga í almannavörnum". er byggđ á lögunum. Ef lögin hefđu ekki veriđ samţykkt núna hefđi ég ţurft ađ fresta útskrift eđa byggja á ţeim gömlu, sem hefđi veriđ hálf fúlt. Ég er á fullu ţessa dagana ađ endurskrifa m.t.t. nýju laganna og vonandi tekst mér ađ ljúka viđ skrifin í sumar svo ég geti útskrifast sem meistari í umhverfis og auđlindafrćđum frá verkfrćđideild HÍ í október. 

En ţađ er ýmislegt nýtt í ţessum lögum. Búiđ er ađ leggja niđur almannavarnaráđ, en ţess í stađ verđur sett á fót almannavarna- og öryggismálaráđ undir formennsku forsćtisráđherra. Ţetta er mjög stórt ráđ, hálfgert ráđstefnuráđ, en auk forsćtisráđherra eiga sćti, dómsmálaráđherra, samgönguráđherra, umhverfisráđherra, heilbrigđisráđherra, utanríkisráđherra og iđnađarráđherra og heimild til ađ kanna inn ađra ráđherra vegna sérstakra mála. Auk ráđherranna eru ráđuneytisstjórar ţeirra og forsvarsmenn ţeirra undirstofnana sem ađ málunum koma. Síđan eiga líka sćti í ráđinu fulltrúar Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Rauđa kross Íslands, samrćmdrar neyđarsímsvörunar og tveir fulltrúar skipađir skv. tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Ráđiđ hefur ţađ hlutverk ađ marka stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum og er ţađ unniđ undir stjórn forsćtisráđherra, ráđherrans sem hefur heildarsýnina. Ég er mjög ánćgđ međ forvarnaţáttinn nýju lögunum, ţađ er mun skýrari ábyrgđ ráđuneytanna sjálfra sem ég taldi skorta verulega á í gömlu lögunum. Nú verđa ráđuneyti sjálf ábyrg fyrir áćtlanagerđ fyrir sig og undirstofnanir sínar, sem verđur vonandi til tryggja góđar samrćmdar áćtlanir um undirbúning og viđbrögđ hvers og eins á hćttustundu. Almannavarnanefnd undir stjórn sveitarfélaganna er einnig skylt ađ gera viđbragđsáćtlun líkt og var í gömlu lögunum og í samrćmi viđ hćttumat sem ţau verđa ađ vinna heima í hérađi.

Ríkislögreglustjóri undir stjórn dómsmálaráđherra hefur enn stóru hlutverki ađ gegna í almannavörnum. Embćttiđ hefur eftirlit međ almannavörnum á landinu öllu og umsjón međ ţví ađ ráđstafanir séu gerđar í samrćmi viđ stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum. Eitt er samt enn óljóst í mínum ferkantađa ferlahuga, en ţađ er stađsetning samhćfingar og stjórnstöđvar í kerfinu. Í lögunum kemur fram ađ stjórnstöđin sé undir sérstakri stjórn sem skipuđ er af dómsmálaráđherra og ţví velti ég ţví fyrir mér hvort hún falli beint undir ráđherra, en ekki almannavarnadeildina, en ţađ kemur allt betur í ljós. Ţarna fer fram samhćfing og yfirstjórn almannavarnaađgerđa međ hliđsjón af viđbragđsáćtlun og almannavarnastigi. Almannavarnastigiđ er loksins búiđ ađ skrifa inn í lögin, en á eftir ađ setja frekari reglur um hvernig framkvćmdin verđur á ţví.

Í nýju lögunum er ríkislögreglustjóra heimilt ađ stofna tímabundiđ ţjónustumiđstöđ vegna tiltekinnar hćttu eđa hćttuástands og var ţađ gert í kjölfar jarđskjálftanna á Suđurlandi 29. maí sl. og var Ólafur Örn Haraldsson ráđinn verkefnisstjóri ţeirrar ţjónustumiđsvöđvar. En í nýju lögunum er ekki litiđ til fullrar endurreisnar samfélagsins og félagslegrar uppbygginga eins og viđ höfum veriđ ađ vinna ađ í LVN rannsóknarhópnum, undir stjórn Guđrúnar Pétursdóttur sem ég hef unniđ međ í rúm tvö ár. En ţegar jarđskjálftinn reiđ yfir á Suđurlandi í maí sl. fóru drög ađ áćtlun fyrir sveitarfélög um endurreisnarstarf í kjölfar náttúruhamfara strax í notkun og er Hveragerđisbćr búinn ađ samţykkja formlega ađ gera slíka áćtlun og er hafin vinna viđ ađlögun ađ ţeirra kerfi.

Í nýju almannavarnalögunum er búiđ ađ setja inn ađgerđastjórn í hérađi, sem hefur veriđ partur af almannavarnakerfinu í nokkurn tíma. Hún er viđbragđsstjórn undir stjórn lögreglustjóra sem vinnur ţegar hćttu ber ađ garđi, en jafnframt er áfram starfandi almannavarnanefnd sem vinnur ađ forvörnum og neyđaráćtlanagerđ. Ţarna er búiđ ađ eyđa einum af óvissuţáttum gömlu laganna, eđa hver stýrir ţćttinum. Nú er ţađ ađgerđastjórn á hćttu og neyđartímum undir stjórn ríkisins í samvinnu viđ samhćfingarstöđ, en utan ţess er ţađ almannavarnanefndin undir stjórn sveitarfélaganna.

Ţađ er margt gott í ţessum nýju lögum og gaman ađ sökkva sér svona ofan í Kerfiđ, enda hefur ţetta kerfi veriđ mér bćđi áhugamál og vinna í nćrri áratug og ţví bónus ađ hafa tćkifćri til ađ nýta sér ţađ í náminu.

Til hamingju međ nýju almannavarnalögin Björn Bjarnason.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband