Rituhöfðafjölskyldan farin í hundana

Við Rituhöfðafjölskyldan erum algjörlega farin í hundana.

Eftir að Lucy okkar flutti lögheimilið á Siglufjörð vegna ofnæmis (hennar sjálfrar) fyrir einu og hálfu ári síðan hefur verið hálf tómlegt hérna í Rituhöfðanum. Við söknuðum þess að hafa ekki góðan vin sem kom á móti okkur við dyrnar. Fór með okkur í göngutúra og ferðalög og horfði á sjónvarpið með okkur. Ásdís Magnea er búin að vera X-tra aðgangshörð undanfarið og fékk m.a. lánaðan fisk hjá Kristínu frænku í Grindó og skírði hann Voffa Crying. Ég náði alveg sneiðinni.

Voffi gullfiskur Voffi gullfiskur

Við Ásdís fórum svo að skoða netið og fundum við lítinn gullmola á netinu fyrir helgina og höfðum samband. En eigendurnir voru  í ferðalagi og voru búin að segja að þau myndu ekki svara fyrr en í helgarlok. Við vorum temmilega bjartsýn þar sem margir voru áhugasamir, en viti menn, eigandinn hún Kristín hafði samband við okkur og sagði að við gætum fengið hana Happy

Í dag fórum við svo á Suðurnesin og sóttum litlu skvísuna okkar, hana Skvísý Fjeldsted (liggur í hlutarins eðli að hundurinn fái ættarnafn). Hún er fjögurra mánaða gullmoli, blönduð hálf poodle og kvart pommi og peking... algjörlega yndisleg, róleg og falleg og sitjum við bara öll og horfum á undrið sofa í sófanum.

Þetta er fimmta tíkin í fjölskyldunni en þær Lucy okkar yndislega og Lady eru hjá ömmu og afa á Sigló og Buffy og Kitty í Grindó... og því var bara ekki hægt að sleppa Y-psiloninu og þegar okkur var sagt að hún hefði verið kölluð skvís bættum við bara y-i við Happy.... Skvísy

Sædís Erla og Skvísý

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Guð hvað þær eru flottar saman. Til hamingju með Skvísý.  Pomeranian 

Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 19:53

2 identicon

Það er sko margt verra sem Rituhöfðufjölskyldan hefði getað gert!

Innilega, hjartanlega, oboðslega mikið til hamingju með Skvísý, hún er yndisleg að sjá. Knús til hennar og ykkar.

Við á Móðabarðinu.

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband