Bloggfćrslur mánađarins, október 2016

Svínaflensusýkingin sem olli Akureyarveikinni eđa ME/CFS (Myalgic Encephalomyelitis/Chronic Fatigue Syndrome)

Ég fékk svínaflensusýkingu (H1N1) í október 2009 og hef ekki jafnađ mig síđan. Ég vissi reyndar ekki hvađ var ađ mér fyrr en fyrir rúmu ári, ţegar ég var greind međ hina svokölluđu Akureyrarveiki - Akureyri disease morbus Akureyriensis - Íslandsveiki - Iceland disease. 

Í dag er sjúkdómurinn kallađur  ME/CFS (Myalgic Encephalomyelitis/Chronic Fatigue Syndrome. Á íslensku er enn talađ um síţreyta eđa síţreytufár, sem er ađ mínu mati mjög villandi heiti ţar sem örmögnun er einungis eitt af einkennum)  ... Svo má ekki gleyma ţví ađ í gamla daga ţá var ţetta náttúrulega allt saman flokkađ sem móđursýki. 

Viđ veiktumst öll hér í Rituhöfđa 4 og margir í kring um okkur, en ég var sú eina sem endađi međ ME. Ég fann gamalt blogg frá svínaflensutímanum 2009, á ţeim tíma sem ég hafđi enn orku til ađ blogga reglulega.

Fram ađ ţessu hef ég ekki fundiđ neitt sem tengir sjúkdóminn beint viđ H1N1 svínaflensu, en í morgun las ég vísindagrein frá Noregi sem birt var áriđ 2015. Ţar segir ađ ţađ sé meiri fylgni milli svínaflensusýkingar og ME/CFS, en bólusetningar viđ H1N1 og sama sjúkdóms. Ég hef svo sem alltaf vitađ hvađ rćsti ţessi veikinda hjá mér, en ég leyni ţví ekki ađ ţetta var samt gott ađ lesa.

Ţessu vildi ég bara deila međ ykkur og henti meira ađ segja í blogg á kosningardegi. Ástćđan er sú ađ ég er viss um ađ ţađ eru fleiri ţarna úti sem hafa ekki jafnađ sig ađ fullu eftir svínaflensuna um áriđ. Leitin ađ ástćđu veikindanna tók mig langan tíma og mögulega get ég hjálpađ einhverjum. Hér er hćgt ađ sjá einkennin.

 

  


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband