Reykjaskólamótið

Ég var svo spennt yfir Reykjaskólamótinu að ég sá í bréfi sem ég skrifaði fyrir helgina að ég hafði skrifaði Reykjaskólamóti í staðinn fyrir Rauða kross fundi .... og sú sem fékk bréfið hefur sjálfsagt ekki alveg skilið hvað ég var að blanda Reykjaskóla í málið  LoL ...  mótið var mér greinilega ofarlega í huga.

Það var ekki lítið gaman að mæta á föstudagskvöldinu og hitta gömlu félagana. Ég fattaði það þegar ég var að leita að stæði að það var ekkert bílastæðavandamál í denn. Ég brunaði á Vesturvistina og hitti þá sem voru komnir, sem voru reyndar mun fleiri en ég hélt að kæmu þá. Svo fór ég upp á Efstuvistina og fann herbergið mitt...en viti menn Raggi Kalli og Eiki voru búnir að hertaka það og fékk ég 57 í staðinn sem var bara í góðu lagi. Fljótlega fórum við í íþróttahúsið og áttum góða stund þar og skoðuðum gömul myndaalbúm og skólabækur. Fljótlega fór að færast fjör í leikinn (trúlega íþróttadrykkirnirWhistling) og Raggi Kalli og Eiki spiluðu eins og í denn og tókum við létta söngæfingu. Daddý grillaði strákana í körfubolta og vorum við að velta því fyrir okkur hvort þetta væru ekki bara sömu körfuboltarnir og notaðir voru í gamla daga og eins fannst okkur salurinn hafa skroppið saman. Við vorum m.a. að spá í það hvort Utangarðsmenn myndu láta sér nægja sviðið eins og í gamla daga þegar stórhljómsveitir komu og héldu tónleika fyrir okkur krakkana í Reykjaskóla.

Ég fór og hitti Ólöfu og Bigga áður en ég fór í morgunmat. Svo fórum við út í íþróttahús þar sem Raggi Kalli formaður hátíðarnerfndar setti mótið. Ólympíuleikar JÓDÝ group voru haldnir í sól og hita sem er bara nokkuð merkilegt fyrir Hrútó (talandi um Global Warming). Ég var í marglita liðinu og ætluðum við sko að vinna, enda mikið keppnislið í hópnum W00t. Hópurinn okkar fékk nafnið Áramót þar sem hann var samansettur úr afmælisbörnum desember og janúar. En áður en við komumst í mark hétum við "Retour í grunnu" . Ástæðan var einföld. Það voru 10 stöðvar í ratleiknum og héldum við að fyrstu vísbendinguna ættum við að fá í anddyri sundlaugar. Nú við leituðum og leituðum og svo fann Böddi snilli miða í skápnum sem á stóð "Retour í grunnu". BINGO þarna var vísbendingin komin! Við brunuðum út í sundlaug og áttuðum okkur fljótt á því að verið var að tala um inntaksrörið í grunnu lauginni. Svo fengum við sundlaugargesti til að skoða rörið fyrir okkur... stóð eitthvað á því? áttum við að skrifa litinn? var eitthvað númer á rörinu?.... Strákarnir fóru í lagnakjallarann og könnuðu í leiðinni gömlu bruggstaðina við laugina. Við ákváðum svo að bíða með þessa þraut og sjá hvort við næðum ekki að klára þetta seinna. Við hlupum á milli stöðva og reyndum að hringja í vin til að komast að því hver var kölluð Dudu. Það gekk ekki, en svo kom í ljósi þegar farið var yfir svörin að hún Gunnhildur Gests hafði verið kölluð Dudu en hún mundi það ekki einu sinni sjálf, svo það var ekki nema von að við myndum það ekki.

Eftir ratleikinn hélt fólk áfram að bætast við og var gaman að sitja úti í sólinni og spjalla við fólk. Ég er verulega ánægð með að hafa þekkt alla sem voru með mér í skóla og það með nafni. Ég fór að klára skemmtiatriðið okkar sem var videoið "Retour í grunnu" og kláraði að setja upp myndasýninguna og stilla græjunum upp í matsalnum. Ég flutti í gamla herbergið mitt á sundlaugarvistinni og kom Guðlaug Bjarna til mín og Habba og Imba fluttu inn á móti. Svo komu fleiri og var orðið verulega líflegt á Sundlaugarvistinni og mikill gestagangur.

Fleiri félagar bættust í hópinn og mættu um 80 í hátíðarkvöldverð og kvöldvöku. Ruth og Skúli Þórðar sáu um veislustjórn og tóku fjölmargir til máls og var látinna félaga minnst, þeirra Jódísar Kristinsdóttur og Björns Ragnarssonar. Það var meiriháttar að hlusta á allt grínið og mátti sjá gamla drauma rætast. En hún Guðlaug Bjarna herbergisfélagi minn var krýnd fegursta stúlka Reykjaskóla 2008 af honum Ragga Kalla, at last. En hún skrifaði það takmark í Reykjaskólabókina um árið. Maturinn var mjög góður og var mikið fjör í mannskapnum þegar haldið var út í íþróttahús þar sem kvöldvakan fór fram. Við Ómar Már félagi minn og sveitarstjóri í Súðavík tókum að okkur að stýra dagskránni úti í íþróttahúsi og verð ég að segja að ég hef oft tekið að mér léttari veislustjórn. Það voru allir svoooooo óþekkir Devil. Nei nei það var bara svo rosalega gaman hjá öllum og klukkan lang gengin í ellefu þegar við fórum út í íþróttahús og því skiljanlegt að komið væri fjör í mannskapinn. Ratleikshóparnir voru allir með atriði, dans, spurningakeppni, limbó og söng og lauk formlegri dagskrá með óborganlegum afmælissöng Rúna og Lýðs fyrir Skjöld Sigurjóns og smá boltasprelli JÓDÝ group.

Þegar Hippabandið steig á svið og sungu þeir öll gömlu góðu lögin og trylltu lýðinn og mátti heyra kunnuglega grúppíuskræki á réttum stöðum og tók ég virkan þátt í þeim, enda gömul Hippabandsgrúppía. Nokkrir gestasöngvarar sungu með Hippabandinu. Ruth söng nokkur lög, Daddý söng Geng hér um og Rafmangspresturinn Þorgrímur söng  poppaðan "gamla nóa" eins og hann hafði lofað mér. Við Bjarki og Gunna Dóra fengum náttúrulega eina tríó mynd af okkur, svona eins og í denn....sjáið bara við höfum ekkert breyst... nema við erum hætt að reykja og ég gat hamið á mér puttana núna.

   Herdís, Bjarki og Gunna Dóra  Gunna Dóra, Bjarki og Herdís

Sviðið var rýmt og mætti Jónas á sviðið og héldum við að nú ætti að halda ræðu, enda vanur maður en viti menn hann kom okkur heldur betur á óvart. Hann fékk Svövu, elskuna sína til 28 ára, til að koma upp á sviðið og skellti sér á skeljarnar og bað hennar "í beinni" við mikinn fögnuð okkar hinna. Bjarki sá svo um diskótekið, eða kannski mest Jón Þór og var líka smá pönk fyrir Júlla þegar hann fékk að ráða. Það var nærri kominn morgunmatur þegar síðustu tónarnir þögnuðu. Jóga bauð svo út að borða í skottið sem fjölmargir þáðu fyrir morgunlúrinn.

Ég vaknaði eldhress og hélt að ég væri útsofin þangað til ég leit á klukkuna. Eftir morgunmat og smá spjall fórum við aðeins upp í skóla og var sama lyktin, en það var búið að taka bókasafnið og breyta frá því að við vorum þarna. Fólk var í gleðivímu yfir vel heppnaðri helgi og fórum við heim á leið með bros á vör með Reykaskólaarmböndin og staup  frá Rúna og Sigrúnu til minningar um Reykjaskólamótið 2008. Það var ekki annað hægt en að koma við í Staðarskála, í síðasta sinn fyrir lokun skálans og fá sér sveittan hamborgara og franskar.

Síðan ég kom heim er ég búin að fá nokkur bréf og myndir og eru allir sammála um að þetta hafi verið fullkomin helgi. Ekkert klúður og enginn skandall (ég hef þá a.m.k. misst af honum) og er fólk þegar farið að tala um næsta mót og bíð ég mig aftur fram sem sérlegur aðstoðarmaður Aðal.

Hér eru nokkrar myndir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislega skemmtilegur pistill hjá þér. Rosalega hefur þetta verið gaman. Frábært að eiga svona tíma með gömlum og kærum vinum, eins og að endurlifa hluta af lífinu, og ekkert hefur breyst nema umbúðirnar.  Ég samgleðst þér og ykkur öllum með þennan skemmtilega hitting ykkar.  Lífið er gott, yndislegt og fallegt, litað af minningum og fóðu fólki.  Kær kveðja til þín elsku hálfnafna.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.8.2008 kl. 00:03

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Takk fyrir frábæra samveru, já og dansinn þið eruð eins og börnin ykkar á myndinni....annars finnst mér allir eldast svo vel.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 13.8.2008 kl. 00:47

3 Smámynd: Hrefna Gissurardóttir

Yndislega Herdís takk fyrir frábæra helgi. Allt var svo vel lukkað. Er eiginlega hálf fegin að ég skuli ekki hafa farið yfir á strákavistina á náttsloppnum til að horfa á handboltaleik Ísland-Rússland um nóttina, heldur sátum við Eiki inná sundlaugarvist og hlustuðum á lýsinguna í útvarpinu og átum snakk og nammi mjög góður endir á góðum degi. Svo hefði ég viljað fá að kveðja þig betur en ég gerði, en ég fæ að knúsa þig næst þegar ég hitti þig. Hilsen Habba

Hrefna Gissurardóttir , 13.8.2008 kl. 11:10

4 identicon

Skemmtileg færsla og flottar myndir!

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 13:03

5 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Techy

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 16.8.2008 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband