Er að koma sumar?

útilegan

Rituhöfðafjölskyldan ætlar að vígja nýja fellihýsið um helgina. Við ætlum að fara með nýstofnuðum ferðaklúbbi Sjálfstæðismanna og njóta þess að vera saman úti í náttúrunni. Þetta er sko alvöru ferðaklúbbur með ferðamálastjóra og allt og hér er lýsing hans af veðurspá helgarinnar:

Veðurklúbburinn á Dalvík hafði auðvitað rétt fyrir sér, veðurspáin fyrir helgina er fín eftir frekar svart útlit fram að þessu. Veðurstofan spáir milli 15 og 20 stiga hita í innsveitum um helgina og líklega þurru veðri og góðum möguleikum á sól. Siggi Stormur gerir enn betur og spáir 22 stiga hita. Þannig að ferðamálastjórinn er með hlýtt viðmót og sól í hjarta og er spenntur fyrir helginni.

Við ætlum í Skorradalinn og verður bara gaman að læra á græjuna. Þetta virtist eitthvað vera svo auðvelt, en við skulum sjá hvernig þetta gengur hjá okkur á föstudaginn. En við erum með reynsluboltum í för sem hægt er að kalla til ef illa fer og allt stefnir í að við verðum að gista í bílnum.


mbl.is Veðurhorfur næsta sólarhringinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Ef rigningin verður þér til mikilla vandræða og þú orðin blaut og köld - þá legg ég til að þú takir þér sundsprett yfir vatnið (þú ert nefnilega hvort sem er orðin blaut) komir í heimsókn til "minnar" og ég skal gefa þér kakó og lána þér inniskó........ Vá, hvað ég er góð!

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 7.6.2007 kl. 10:03

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Þetta líst mér vel á.   Ef ég sé X-D fánann í flaggstöng í einhverri hjólhýsabyggð þá veit ég að þú ert ekki fjarri.    Svo veistu að það er alltaf sól fyrir austan.

Marinó Már Marinósson, 7.6.2007 kl. 12:47

3 Smámynd: Karl Tómasson

Það verður  V onandi      G aman.

Kær kveðja frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 7.6.2007 kl. 17:23

4 identicon

Jahá, ég hlakka ekkert smá til.  Kalli minn það verður sko alveg

S vakalegt fjör og S tuð, S ungið og S pilað hjá okkur

S jálfstæðismönnum og konum og hvað eru mörg S í því.

Elín Karitas (IP-tala skráð) 8.6.2007 kl. 05:44

5 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Ingibjörg mín, ég tek líka með mér sjónaukann og fylgist með ykkur skötuhjúum og hver veit nema ég komi í kakó á tveimur jafnfljótum eða þá fjórum svörtum gúmmí. Þið Grétar eruð svo velkomin í stuðið handan vatnsins og fjallakakó.

Já Raggi þetta snýst allt um frelsi einstaklingsins og að hafa gaman saman  og þú veist að þú ert alltaf velkominn aftur

USSSSSSSSS Kalli þetta verður Svo Sannarlega Stuðútilega Sumarsins með Svaka Sjálfstæðis Stuðboltu.

Herdís Sigurjónsdóttir, 8.6.2007 kl. 10:56

6 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

ÉG gleymdi einu...Marinó ég held að hann verði einmitt að austan  þú kemur bara í sólina í Skorranum

Herdís Sigurjónsdóttir, 8.6.2007 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband