Gott ástand í leikskólum Mosfellsbæjar

Sædís Erla á leikskólanum Huldubergi

Við fræðslunefndin fengum yfirlit yfir stöðu mála í leikskólum Mosfellsbæjar á fundi okkar í gær. Ástandið í starfsmannamálum er ágætt um þessar mundir, en samt er alltaf barátta að ná í gott starfsfólk. Maður er mjög meðvitaður um að lítið má út af bregða til að þessi staða breytist og munaði minnstu að seinka þyrfti inntöku barna vegna manneklu á einum leikskólanum um daginn.

Búið er að innrita í öll laus pláss í leikskólunum og eru börnin að byrja um þessar mundir. Öll börn sem fædd eru árið 2005 hafa fengið tilboð um leikskólavist í einhverjum af leikskólum bæjarins og var ánægjulegt að sjá að flestir fengu úthlutað plássi skv. fyrsta vali um tiltekinn leikskóla.

Ég er ánægð með alla leikskólana okkar og starfið sem þar er unnið. Ég vona svo sannarlega að við þurfum ekki að grípa við sömu ráðstafana og nágrannasveitarfélögin og senda börn heim vegna manneklu. Það er einmitt ástæða þess að ég segi að ástandið sé gott í dag, 7,9,13


mbl.is Starfsfólk vantar á leikskólana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að heyra þetta. Við eigum eina deild til góða sem verður opnuð um áramót. Við höfum verið heppin með starfsfólk og þetta er allt í þokkalegu góðu standi.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.9.2007 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband