Skattpeningum mínum vel varið

eiturlyf

Talandi um fjármuni, þá vil ég bara segja að ég er hæstánægð með hvað skattpeningum mínum var vel varið í þessa aðgerð sem hefur staðið yfir í langan tíma. Ég veit að samstarf hefur verið aukið við önnur lönd og er ánægjulegt að sjá árangurinn í baráttunni við eitrið. 

Bravó Björn Bjarnason yfirmaður löggæslumála í landinu og til hamingju með árangurinn allir sem tóku þátt í  aðgerðinni.


mbl.is Gríðarlegir fjármunir í spilinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl Herdís háskólapía með meiru

Ég get ekki annað en tekið undir með þér varðandi framgöngu lögreglu og löggæsluyfirvalda. Að mínu viti þarf þó að gera enn betur við það fólk sem sinnir löggæslunni, bæði varðandi laun og öryggismál.

Annað sem maður kemst ekki hjá að velta fyrir sér þegar menn reyna að skunda á vettvang með 70 kíló af amfetamíni og það er ,,Hver borgar" - ég meina ég á voða erfitt með að trúa því að þessir ágætu sjómenn hafi bara hitt á þessa miklu amfetamínútsölu og ákveðið að slá sér á stöffið á Visa raðgreiðslum.

Hittumst vonandi bráðum. Gangi þér allt í haginn ljúfan.

Besta kveðja af Krók.

KMA

Katrín María (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 09:30

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Því miður er hætt við að efnamiklir einstaklingar standi á bak við þetta.  Þetta kemur í ljós.  Eigið góða helgi.

Vilborg Traustadóttir, 21.9.2007 kl. 11:20

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er ánægð með löggæsluna en ég vil borga betri laun og búa þeim öruggara starfsumhverfi, þetta er hrikalega erfið vinna og tekur mikið af mönnum.  Svo vil ég sjá fjandans höfuðpaurana tekna á beinið. 

Ég er á fullu að safna kjark fyrir mánudaginn, hef svo margar góðar óskir frá ykkur vinum mínum að ég fíla mig bara nokkuð örugga.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.9.2007 kl. 22:22

4 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

í guðana bænum ekki þakka Bjössa fyrir þetta....hann er að fækka lögreglustðvunum á landinu...en þetta var flott hjá þeim

Einar Bragi Bragason., 21.9.2007 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband