New Orleans

Næsta vika verður spennandi hjá mér, enda á leið á náttúruhamfararáðstefnu í New Orleans. Þar verður mikil áhersla á uppbyggingarfasann eftir náttúruhamfarir, enda hafa heimamenn nokkra reynslu eftir hamfarirnar miklu eftir fellibylinn Katrínu 2005. Ég mun því eflaust læra mikið og fá fullt af efni sem mun nýtast mér í meistararitgerðinni og eins við smíðar á næstu verkefnaumsókn.

mardigras

Ég var að átta mig á því í morgun að ég rétt missi af Mardi Gras carnivalinu þeirra og lokadeginum sem þeir kalla Fat Tuesday, en ég ætla ekki að mæta fyrr en á miðvikudeginum. En ég á örugglega eftir að hitta á nokkra blúsbari í franska hverfinu þar sem hótelið er og hef ég líka heyrt að þarna sé nk. carnivalstemming árið um kring, þannig að ég hef ekki stórar áhyggjur af þessu, það gefur mér bara tækifæri til að fara aftur.

Ég er að vona að Jóhann bróðir komi og hitti mig, en hann vinnur mikið þarna niðurfrá og væri því vel við hæfi að nýta tækifærið þegar Litla er á staðnum. Jæja ætli sé þá ekki best að fara að leita að sumarfötunum Wink....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábært að heyra þetta. Vonandi gengur allt mega vel hjá þér og skemmtu þér líka ef þú hefur tíma til.  Kveðja til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2008 kl. 16:10

2 identicon

Góða ferð elsku vinkona

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 18:34

3 Smámynd: Karl Tómasson

Það er eitthvað magnað við það að vera að fara á náttúruhamfara ráðstefnu. Þú ert engri lík Herdís mín, gangi þér vel og góða ferð. Sjáumst hress.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 3.2.2008 kl. 19:43

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Take care...

Vilborg Traustadóttir, 3.2.2008 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband