Óveður heima og sól í New Orleans

Gott mál með að virkja samhæfingarstöðina. Að mínu mati á að nota stöðina meira en minna og hefur það líka verið þróunin á undanförnum árum. Það var góð reynsla að fá að vera með í þróunarferlinu í samhæfingarstöðinni og mest með Gyðu og því var gaman að sjá þessa mynd af henni þarna með fréttinni. Það er mjög mikilvægt að fyrir hendi sé samræmt kerfi og fólk sem þekkir starfsemi annarra viðbragðsaðila. 

Annars allt gott að frétta frá New Orleans. Það eru önnur hamfaramál sem við erum að ræða hér en snjóbylur. Hér er verið að ræða uppbyggingu í kjölfara fellibyljanna Katrínar og Rítu árið 2005. Við Ásthildur fórum aðeins út í gær þegar við vorum um það bil að sofna og fórum aðeins á röltið á blúsbaragötunni. Að vísu varð ég fyrir vonbrigðum því þetta var næstum eins og í Can Cun í Mexico.. en byggingarnar dásamlegar og svo fundum við einn blúsbar og nutum New Orleans blústónlistar í botn.

DSCF0044

 


mbl.is Virkja á Samhæfingarmiðstöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Stóra systir þín hefur verið mjög óþekk fyrst veðrið er svona á 50 ára afmælinu hennar? Eins og það var í gær þá rauk upp með ofsaveðri en var svo blæjalogn aftur...eins og hendi væri veifað....

Gangi þér vel í New Orleans...

Vilborg Traustadóttir, 8.2.2008 kl. 14:43

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er ekkert hættulegt að rölta svona úti á götu á kvöldin??  Vona að það verði ekki allt vitlaust þegar veðrið skellur á okkur hér í dag, en það lofar ekki góðu.  Hafðu það gott mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.2.2008 kl. 14:50

3 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

En Vilborg er það ekki bara eins og Kristín .

Nei ég held ekki hálfnafna, a.m.k. ekki í gær, enda vorum við komnar inn kl.10 um kvöldið, enda þá hánótt á Íslandi.

Herdís Sigurjónsdóttir, 8.2.2008 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband