Pabbi peran mín er ónýt, viltu skipta um batterí

Sædís Erla í keilu

Það var skondið að fylgjast með krökkunum í dag þegar þau komu heim úr skólanum og allt var rafmagnslaust í Mosfellsbænum. Allt sem stráknum datt í hug að gera krafðist rafmagns og á endanum sagði hann að þetta væri ótrúlegt það bara væri ekki hægt að gera neitt án þess að hafa rafmagn... "Hvað gerði fólk eiginlega í gamla daga þegar það var ekkert rafmagn" sagði þá vinur hans. ... Þau fóru að spila krakkarnir og svo kom litla skottið heim. Þá var rafmagnið rétt svo komið á og við vorum enn að ræða rafmagnsleysið... þá sagði hún þessi elska, eftir að ég hafði haldið sömu ræðuna og venjulega við slíkt tækifæri...... "Í gamla daga var sko ekkert sjónvarp, bara Rás eitt, engar tölvur og DVD og ......   "já en mamma var matur í gamla daga?"Crying

En best þótti mér samt þegar  hún kom lallandi með peruna úr lampanum sínum áðan og sagði að hún væri biluð og hvort pabbi gæti ekki skipt um batterí! LoL

Hún er milljón skvísan og heldur uppi stuðinu líkt og sjá má á myndinni sem tekin var um daginn þegar við fórum með afa á Rifi í keilu.


mbl.is Rafmagn komið á að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Thumbs Up  Langar bara að senda smákveðju. Er að hressa mig við á smá blogg lestri.   Double Kiss skvísan er náttl. algjör dúlla

Ásdís Sigurðardóttir, 1.4.2008 kl. 17:38

2 Smámynd: Karl Tómasson

Eitt veit ég að peran í mömmunni er í lagi.

Þetta var skemmtileg færsla og sæt Herdís mín.

Bestu kveðjur úr Tungunni frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 1.4.2008 kl. 23:13

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Ég var einmitt stödd þarna á miðju "átakasvæðinu" í Álafosskvosinni og pantaði tvær lopapeysur og allt var rafmagnslaust!!!!

Gangi ykkur vel.

Vilborg Traustadóttir, 2.4.2008 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband