Ásdís Magnea útskrifast frá grunnskóla

asdis_utskrift

Það var yndisleg stund en samt sorgleg þegar 10. bekkur útskrifaðist úr Lágafellsskóla og ótrúlegt að frumburðurinn skuli vera á leið í menntaskóla.

útskriftarræðan við skólaslitin

Það var dásamlegt að sjá Ásdísi okkar svífa upp á svið og halda þessa líka þessu flottu ræðu fyrir hönd úrskriftarnema sem formaður nemendafélagsins. Skólastjórinn hafði að orði þegar hún bar búin að hún spáði því að þetta yrði ekki síðasta ræðan hennar og að innhald ræðunnar hefði lofað góðu í þá veru.

Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og félagsfærni og svo fluttu Dagbjört og Kæja flott tónlistaratriði. Svo var komið að kveðjustundinni og held ég að bekkurinn hafi aldrei verið þéttari sem er mjög mikilvægt og gefur það ákveðnar vísbendingar um að bekkjarmótin verði skemmtileg og kepptust þau við að skrifa í árbækurnar hvert hjá öðru.

með útskriftarbókina

Kæja, Gísli og Ásdís

áritun í árbókina

mamma fékk líka blóm

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæhæ elsku Herdís og fjölskylda.

Ég kíka reglulega á bloggið þitt, svo gaman að fylgjast með ykkur og sjá hvað þið eruð öll að bralla

Alveg ótrúleg að "litla" skvísan mín sé bara á leið í menntaskóla!...úff hvað tíminn líður. Skelltu kossi og knúsi á hana og Sturlu frá mér

Ykkar,

Sonja (pössunarpía)  

Sonja (IP-tala skráð) 7.6.2008 kl. 23:02

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já er þetta ekki ótrúlegt með blessuð börnin. Elsku hjartans Sonja mín, ég er oft að hugsa til þín og ykkar og væri ekki slakt að fá heimsókn í Rituhöfðann í sumar.

Rituhöfðaknús

Herdís Sigurjónsdóttir, 8.6.2008 kl. 07:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband