Íþrótta- og útivistarbærinn Mosfellsbær

 

Ávarp flutt á kvöldvöku Aftureldingar sem haldin var 5. maí 2010 í Listasalnum í Kjarna þar sem stjórnmálaflokkar í Mosfellsbæ fengu tækifæri til að kynna stefnuskrá sína í íþrótta- og tómstundamálum

IMG_3483

Fundarstjóri kæru fundarmenn

Mosfellsbær er mikill íþrótta- og útivistarbær. Það eru ekki orðin tóm og ætla ég í þessari ræðu að rökstyðja það og kynna jafnframt stefnuskrá sjálfstæðismanna í íþrótta- og tómstundamálum. 

Mosfellsbær hefur fyrst bæjarfélaga mótað lýðheilsustefnu og eru aðstæður Mosfellinga einstakar. Má nefna hina ósnortnu náttúru, stígakerfið og fjölbreytta aðstöðu til iðkunar íþrótta og tómstunda. Slík aðstaða væri til einskis ef engir væru íbúarnir, enda er það ekki raunin í Mosfellsbæ þar sem hér búa um 8600 manns og er hlutfall barnafjölskyldna hátt. Síðast og trúlega mikilvægast í þessari upptalningu, er að hér starfa öflug íþrótta- og tómstundafélög sem skipta miklu máli fyrir samfélagið okkar. Þúsundir sjálfboðaliða hafa í gegnum árin lagt metnað sinn í að sinna þörfum samfélagsins, í góðu samstarfi við bæjaryfirvöld.  Íbúum til heilla.

Má þar fyrst nefna  hið aldargamla en síunga Ungmennafélag Aftureldingu. Einnig má nefna Golf-klúbbana Kjöl og Bakkakot, Hestamannafélagið Hörð, Mótomos, Gáski, björgunarsveitina Kyndil og skátafélagið Mosverja. Í öllum þessum félögum og fleiri til er unnið óeigingjarnt starf. Sem ber að þakka.

Um leið og við horfum til framtíðar, er vert að skoða hluta af því sem gert hefur verið á liðnum árum. Verkefni sveitarfélagsins hafa falist í uppbyggingu aðstöðu s.s. nýju íþróttamiðstöðinni Lágafelli, þar sem rekin er ein vinsælasta almenningssundlaug landsins. Nýr gervigrasvöllur við Varmá, áfram-haldandi uppbygging golfvallar í samstarf við Kjöl og bygging reiðhallar í samvinnu við Hörð. Einnig hefur Mótomos byggt upp langþráða aðstöðu með aðstoð bæjarins.

Beinn stuðningur við tómstundafélögin hefur einnig aukist. Framlög bæjarins til málaflokksins hafa rúmlega tvöfaldast á síðustu fjórum árum og farið út 218 mkr. árið 2006 í 545 mkr. árið 2009. Sem hlutfall af skatttekjum hafa framlög til íþrótta- og tómstundamála, sífellt verið að aukast og er nú svo komið að Mosfellsbær er í fararbroddi sveitarfélaga um framlög til íþrótta- og tómstundamála. 16% af skatttekjum bæjarins fara í þennan málaflokk á meðan meðaltalið fyrir höfuðborgarsvæðið og landið allt er um 12%. 

Á kjörtímabilinu voru gerðir árangurstengdir samningar um meistaraflokka Aftureldingar í handknattleik og knattspyrnu, og nýtur félagið góðs af því þegar vel gengur eins og nú. Eins var endurnýjaður samningur um barna- og unglingastarf þar sem styrkir voru auknir verulega. Framundan er endurnýjun samninga.

Nýtt skref var stigið síðastliðið haust með tilkomu íþróttafjörs fyrir yngstu Mosfellingana, það er mikilvægt verkefni í þá veru að gera íþróttaiðkun og tómstundastarf að lífsstíl sem hefur mikið forvarnagildi. Ekki er einvörðungu horft til þess að ala upp afreksfólk heldur er lögð áhersla á þátttöku allra og ekki síst þeirra sem ekki fá hvatningu til iðkunar að heiman.

Mosfellsbær leggur áherslu á lýðheilsu og forvarnir í sinni víðustu mynd, fyrir unga sem aldna og fögnum við hugmyndum Aftureldingar varðandi hreyfingu þeirra sem eldri eru.

Áfram skal haldið

Það er mikilvægt að staðinn verði vörður um þessa mikilvægu starfsemi hér í okkar góða bæjarfélagi og ekki síst á þeim tímum sem við lifum í dag.

Í stefnuskrá okkar fyrir kosningar 2010 kemur einnig fram:  

Við sjálfstæðismenn viljum að samstarf bæjarins við íþróttafélögin taki mið af uppeldis- forvarnar og félagslegum gildum.  Slíkt samræmis þeirri stefnu sem Jón kynnti áðan. Það er göfugt markmið að setja sér stefnu um að 80% barna að 12 ára aldri verði virk í Aftureldingu.

Við ætlum í áframhaldandi uppbyggingu að Varmá og m.a. tryggja með því viðunandi félagsaðstöðu.  Munum við vinna með Aftureldingu að aðstöðumálum og færa þeim ríkari ábyrgð á skipulagi og nýtingu sameinginlegra íþróttamannvirkja. 

Sú vinna hófst að frumkvæði Aftureldingar. Markmiðið með því er að auka og bæta nýtingu fjármuna, bæta eftirlit með nýtingu og opnar það einnig möguleika á að Afturelding geti með því móti skapað tekjur innan venjubundins opnunartíma.

Við ætlum að halda íþróttaþing með félögum bæjarins til að auka samvinnu og samstarf við þau. Slíkt er nýung í sögunni. Á það að vera faglegur vettvangur innan sveitarfélagsins, þar sem hagsmunaaðilar mætast, skiptast á skoðunum og fá raunverulegt umboð til athafna. Leiðarljósið verða þessir punktar:

  • auka á formlega samvinnu og samstarf bæjarins við íþrótta- og tómstundafélög í bænum
  • auka á gagnkvæman skilning hagsmunaaðila á þörfum og væntingum hvorra annarra
  • auka skilvirkni og bæta nýtingu mannvirkja og fjármuna með aukinni samvinnu
  • fylgja eftir og marka áfram stefnu Mosfellsbæjar í íþrótta- og tómstundamálum
  • meta þörf á uppbyggingu og viðhaldi íþróttamannvirkja til lengir tíma og meta forgangsröð

Við teljum mikilvægt að leita leiða til að halda þátttökugjöldum barna og unglinga hófstilltum,  í góðu samstarfi við félögin.

Við ætlum áfram að tryggja að íþróttamiðstöðin að Lágafelli þjónusti íbúa bæjarins og gesti með fyrsta flokks aðstöðu.

Við viljum stuðla að uppbyggingu á framtíðaraðstöðu fyrir skátastarf og framboði á fjölbreyttri útivistaraðstöðu í Ævintýragarðinum og er samstarf við Skátana  mikilvægt í þeirri uppbyggingu.

Okkar framtíðarsýn er að fjöldi íbúa og ferðamanna heimsæki Ævintýragarðinn.

Við ætlum einnig að fjölga stikuðum gönguleiðum og bæta útivistaraðstöðu við Hafravatn.

Við viljum halda áfram uppbyggingu á brettasvæði við Völuteig og koma upp sparkvelli við Varmárskóla.

Við viljum stuðla að því að snjóframleiðsla verði hafin á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins.

Eins og þið heyrið þá hefur sjálfstæðisflokkurinn hug á að efla íþrótta og tómstundastarf í bænum og auka samstarf við okkar öflugu félög við framkvæmdina. Við viljum gæta jafnræðis þar sem mikill fjöldi íþrótta- og tómstundafélaga eru starfandi hér í bæ og er það lýsandi fyrir þann kraft sem í bæjarfélaginu býr.

Það er mikilvægt á tímum sem þessum að við hugsum inná við og styðjum við það góða starf sem unnið er hjá íþrótta- og tómstundafélögum í Mosfellsbæ. Við viljum halda áfram að byggja upp góða aðstöðu og eru mörg verkefni óleyst.

Við sjálfstæðismenn munum áfram leggja okkur fram um að Mosfellingar og aðrir geti eflt líkama og sál í íþrótta og útivistarbænum Mosfellsbæ,  í dag og til langrar framtíðar.

 

 


D-listamenn á göngu um Mosfellsbæ

Í gær gekk ég mína fyrstu kosningagöngu í þessari kosningabaráttu. Við ætlum okkur að ganga í hvert hús í bænum og efast ég ekki um að það takmark náist. Að mínu mati er þetta einn skemmtilegasti hluti baráttunnar og nýt ég þess að hitta fólk og ræða bæjarmálin. 

Fyrst fór ég með Halla tíunda í Arnartangann og afhentum við stefnuskrá okkar sjálfstæðismanna og ræddum við fólk. Flestir voru jákvæðir og ánægðir með að við værum að ganga í hús. Ég ætla ekki að vera svo barnaleg að halda að allir þeir þessi jákvæðu ætli sér að kjósa okkur sjálfstæðismenn, en vissulega sögðust margir ætla að gera það, sem er ánægjulegt. Einn ágætur viðmælandi spurði mig hvort við ætluðum nú að reyna að moka yfir fortíðina. Ég sagði að það væri engin þörf fyrir slíkan mokstur hér í Mosfellsbænum, við værum við stolt af fortíðinni og ætluðum að standa okkur vel áfram. Þá fór hann að tala um að hann svæfi bara hérna, væri ekki alveg inni í málunum. Hann varð bara nokkuð sáttur þegar ég sagði honum að hann gæti sofið rólegur því hann byggi í mjög vel reknu sveitarfélagi.

IMG_3349 IMG_3348

Við tókum okkur matarhlé og fengum þessa líka djúsi lúðu úr Fiskbúðinni Mos sem Snorri Gissurar grillaði ofan í okkur göngugarpana. Eftir matinn hlupum við Bryndís, Hafsteinn og Kolla Skeljatangann og tók ég svo Rituhöfðann á leiðinni heim og hitti marga góða granna.

Ég hlakka til að halda áfram að dreifa og ræða við Mosfellinga og kynna þeim stefnu okkar sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ.

Í Mosfellsbæ er framtíðin björt, fjárhagurinn traustur, umhverfið fagurt og mannlífið blómlegt. Það er markmið okkar sjálfstæðismanna að hér geti íbúar á öllum aldri búið við bestu aðstæður og fái notið góðrar þjónustu. Sjálfstæðismenn vilja fylgja gildum Mosfellsbæjar virðingu, jákvæðni, framsækni og umhyggju.


Dagur umhverfisins í Mosfellsbæ

Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert, en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Í ár verður dagurinn tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni.

Dagur umhverfisins er haldinn hátíðlegu í Mosfellsbæ. Af því tilefni býður Varmárskóli gestum að kynna sér útikennslusvæði Varmárskóla, við Skólagarðana að Varmá frá kl. 12:00-14:00. Í boði verða leikir um svæðið, kveikt verður upp í hlóðunum og boðið uppá heitan drykk. Allir eru boðnir velkomnir að eiga góða stund í útieldhúsinu, Vin.

mosfellsbaer

Mosfellsbær býður einnig uppá opið hús í fuglaskoðunarhúsinu við Leiruvog frá kl. 10:00-15:00. Fuglasérfræðingur verður á staðnum og veitir upplýsingar um fuglana á svæðinu og leiðbeinir um greiningar á þeim. Fuglafræðingar frá East Anglia háskólanum líta við og fræða gesti um árlegar rannsóknir sínar á jaðrakan í Leiruvogi.

Leiruvogurinn er einstakur hvað varðar fuglalíf allan ársins hring og því gott að fylgjast þar með fuglum í sínu náttúrulega umhverfi. Húsið er vel staðsett við Langatanga neðan við golfvöllinn, þar sem gott útsýni er yfir bæði hvíldarstað margra fuglategund og sjálfar leirurnar þar sem þeir koma til að afla sér fæðu.

IMG_1101

Ég hvet Mosfellinga til að nýta sér tækifærið og kynna sér þá góðu aðstöðu sem boðið er uppá í fuglaskoðunarhúsinu undir leiðsögn fróðra manna. Nánari upplýsingar um daginn í Mosfellsbæ.

Nánar um dag umhverfisins á landsvísu.


Takk fyrir stuðninginn kæru Mosfellingar

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 29. maí fór fram laugardaginn 6. febrúar 2010. Á kjörskrá voru 1341 manns og 826 manns kusu sem þýðir 61% kjörsókn. 15 manns gáfu kost á sér í prófkjörinu. 

Röð efstu 7 var sem hér segir. 

  1. Haraldur Sverrisson með 671 atkvæði í 1. sæti (83,5%)
  2. Herdís Sigurjónsdóttir með 364 atkvæði í 1. - 2. sæti  (45,3%)
  3. Bryndís Haraldsdóttir með 340 atkvæði í 1.- 3. sæti (42,3%)
  4. Hafsteinn Pálsson með 324 atkvæði í 1. - 4. sæti (40,3%)
  5. Kolbrún G. Þorsteinsdóttir með 343 atkvæði í 1.-5. sæti (42,7%)
  6. Rúnar B. Guðlaugsson með 323 atkvæði í 1.-6.  sæti (40,2%)
  7. Theodór Kristjánsson með 370 atkvæði í 1. - 7. sæti (46,0%)

Haraldur Sverrisson bæjarstjóri gaf einn kost á sér í fyrsta sæti og hlaut hann 83,5% atkvæða í það sæti sem er glæsileg kosning. Sjálf sóttist ég eftir 2. sæti og náði því takmarki og hlaut 364 atkvæði í 1. og 2. sæti. Fjórir aðrir sóttust eftir 2. sætinu og því er ég sæl með að ná settu marki. Næsti maður inn hlaut 340 atkvæði í 1-3 sæti. 

Áfram verða konur í forystusveit í Mosfellsbæ

Í Mosfellsbæ myndaðist náttúrulegur fléttulisti. Í átta efstu sætunum eru fjórar konur og fjórir karlar. Í fyrstu 5 sætunum eru þrjár konur og tveir karlar. Það er ekkert nýtt í Mosfellsbænum og á þeim tíma sem ég hef starfað fyrir Mosfellsbæ hafa oftar en ekki verið fleiri konur í bæjarstjórn. Árið 1954 var Helga Magnúsdóttir á Blikastöðum var fyrst kosin í sveitarstjórn og síðan endurkjörin 1958. Hún var oddviti og framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. Aðrar konur hafa einnig verið í forystusveit . Má nefna Salóme Þorkelsdóttur, fyrrverandi forseti alþingis sem var í sveitarstjórn og einnig Helgum Richter sem starfaði í 16 ár fyrir sveitarfélagið, ef ég man rétt. Ekki má heldur gleyma henni Ragnheiði Ríkharðsdóttur fyrrverandi oddvita okkar sjálfstæðismanna sem kjörin var 2002 og var bæjarstjóri til 2007, þegar hún var kjörin þingmaður og Haraldur tók við. 

Kostnaður við prófkjör

Hvað varðar kostnað í prófkjörinu þá reyndi ég að halda honum í lágmarki og fékk enga styrki. Ég var með kosningaskrifstofu við stofuborðið í Rituhöfðanum. Ég gaf út einn bækling sem vinir mínir dreifðu í svokallaðri vinagöngu Herdísar. Ég gerði bókamerki og setti eina auglýsingu í Mosfelling. Ég vann allt efnið sjálf, var minn eigin kosningastjóri, með góðum stuðningi vina minna. Kostnaður sýnist mér vera rétt rúmar tvö hundruð þúsund krónur, en það kemur betur í ljós á næstu dögum. Ég mun birta uppgjörið.

Prófkjörstrix

Kosningabaráttan var snörp og verð ég að viðurkenna að ég er fegin að hún er yfirstaðin. Það á einfaldlega ekki við mig að slást við félaga mína. Ég tel mig hafa háð heiðarlega kosningabaráttu og hvatti kjósendur til að hugsa um hag listans. Í mínum huga er fráleitt að hugsa til þess að "trixið" til að koma sér áfram í prófkjörum almennt sé að hvetja stuðningsfólk til að merkja ekki við þá einstaklinga sem verið er að keppa við um sæti, hvort sem þeir eru frambærilegir eða ekki. Ég ætla ekki að spá í hvort slíkt hafi verið gert hér, en er afar þakklát þeim 605 Mosfellingum sem kusu mig. Ég þakka þeim fyrir að velja mig í forystusveit og treysta mér fyrir stjórn Mosfellsbæjar á næstu árum. Líkt og ég hef oft sagt að undanförnu þá mun ég áfram leggja áherslu á heiðarleika, góðan rekstur og skilvirka stjórnsýslu. Mér er umhugað um að efla Mosfellsbæ og tryggja að uppbygging samfélagsins verði í góðri sátt við íbúa og umhverfi. 

Takk enn og aftur kæru Mosfellingar. 


mbl.is Okkur eru allir vegir færir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mosfellsbær er í sókn

Tengdó, Sædís Erla og Herdís  Sturla Sær on the top of Reykjafell 

Mosfellsbær er víðfeðm náttúruparadís í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Búið er að byggja upp sterka innviði og erum við því betur undirbúin að nýta okkar hina einstöku náttúru, menningu og sögu, samfélaginu til góðs.

Ég held að flestir geti verið mér sammála um að Mosfellsbær er í sókn og mikilvægt að spila rétt úr þeim tækifærum sem felast m.a. í sérstöðunni. Því höfum við verið að marka okkur stefnur og tekið ákvarðanir sem efla bæði lífsgæði þeirra sem nú lifa og komandi kynslóða.

Heilsubærinn Mosfellsbær

Mosfellsbær gaf á síðasta ári út velferðaráætlun í anda Staðardagskrár 21 til ársins 2020 sem ber heitið Mosfellsbær - sjálfbært samfélag. Jafnframt hefur verið sett stefna um að Mosfellsbær verði leiðandi á sviði heilsueflingar, endurhæfingar og lýðheilsu. Í þessu felast margvísleg tækifæri fyrir samfélagið og ekki síst á sviði heilsutengdrar ferðaþjónustu.

Reykjalundur er stolt okkar Mosfellinga. Fyrirtækið er í fararbroddi á sviði endurhæfingar í landinu og eru eflaust mörg ónýtt tækifæri tengd þeirri starfsemi. Það var mikið gleðiefni þegar fyrirtækið PrimaCare tók ákvörðun um að reisa sjúkrahús sitt í Mosfellsbæ og var það hið einstaka umhverfi og metnaðarfull stefna Mosfellsbæjar í umhverfismálum sem átti þátt í staðarvali fyrirtækisins. Á vormánuðum skýrast næstu skref hjá PrimaCare og ef áætlunin stenst þá verða til 600 störf  að ógleymdri afleiddri  þjónustu sem  til verður. 

Ævintýralegt Varmársvæði

Varmársvæðið sem liggur á milli Varmár og Köldukvíslar er trúlega eitt mikilvægasta útivistarsvæði okkar Mosfellinga. Á 20 ára afmæli Mosfellsbæjar 9. ágúst 2007 var tekin ákvörðun um að svæðið yrði nýtt sem ævintýra- og útivistargarður. Hugmyndin er sú að garðurinn geti nýst allri fjölskyldunni, allan ársins hring til fjölbreyttrar útivistar.

IMG 2051  Vígsla mosfellska ævintýragarðsins 2009

Varmársvæðið er um margt sérstakt, upp með Varmánni er það skógi vaxið að hluta, stígar liggja með ánni og þar að leiðandi mikið nýtt til útivistar. Varmá er á náttúruminjaskrá sem varmá, því heitar uppsprettur runnu í hana áður fyrr. En áin kólnaði eftir að farið var að virkja heita vatnið á svæðinu. Í námi mínu í umhverfis- og auðlindafræði skoðaði ég möguleika svæðisins og sýndu niðurstöður að margvísleg tækifæri eru til staðar sem nýst gætu íbúum og ferðamönnum á svæðinu. Slíkt svæði hefði einnig töluvert vísindalegt gildi og mætti m.a. skoða verndun og endurheimt vistkerfa.

Mér er umhugað um að efla  bæinn okkar og tryggja að uppbygging samfélagsins verði í góðri sátt við íbúa og umhverfi. Ég vil nýta sérstöðu sveitarfélagsins til eflingar atvinnu, útivistar, nýsköpunar og menntunar og lít bjartsýn til framtíðar. 

Ég heiti því að vinna áfram af  krafti fyrir bæjarfélagið og óska eftir stuðningi í 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna 6. febrúar.

Herdís Sigurjónsdóttir, bæjarfulltrúi

Herdís gefur kost á sér í 2. sæti.  Upplýsingar um Herdísi 

Greinin birtist í Mosfellingi 5. febrúar 2010. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband