Herdís Sigurjónsdóttir
Herdís Sigurjónsdóttir er fædd á Siglufirði 1965. Býr í Rituhöfða í Mosfellsbæ með eiginmanni sínum Erlendi Erni Fjeldsted byggingatæknifræðingi sem starfar hjá Eflu og þremur börnum þeirra Ásdísi Magneu (1992), Sturlu Sæ (1995) og Sædísi Erlu (2003).
Fædd og uppalin á Siglufirði. Dóttir hjónanna Sigurjóns Jóhannssonar skipstjóra og Ásdísar Magneu Gunnlaugsdóttur húsmóður. Á tvö systkini þau Kristínu (1958) sem býr á Siglufirði og Jóhann (1960) sem býr í Seattle í Bandaríkjunum.
Menntun:
Umhverfis- og auðlindafræðingur MSc frá Háskóla Íslands, 2009. Meistaraverkefnið fjallaði um hlutverk sveitarfélaga í almannavörnum og endurreisn sveitarfélaga eftir náttúruhamfarir og samfélagsleg áföll, með áherslu á samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Lífeindafræðingur BSc, 1989.
Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík, 1985.
Störf:
Viðbragð - Ráðgjöf og greining frá 1. febrúar 2016. Sjálfstætt starfandi ráðgjafi.
Veitir ráðgjöf til fyrirtækja, félagasamtaka og opinberra aðila á sviði neyðarstjórnunar, öryggis-, umhverfis- og gæðamála. Viðbragð - Ráðgjöf og greining veitir einnig stjórnsýsluráðgjöf sem felst m.a. í rýni á atvikum, ferlum, samstarfi, samhæfingu og viðbrögðum.
2009-2016 - VSÓ Ráðgjöf. Sviðsstjóri - öryggismál og greining. Sérfræðiráðgjöf á sviði neyðarstjórnunar, umhverfis-, gæða- og öryggismála. Ýmis rannsóknar- og greiningarverkefni tengd stjórnsýslu og almannavörnum.
2006-2008 - Stofnun Sæmundar fróða við HÍ: Verkefnaráðinn sérfræðingur og starfaði við verkefnið Langtímaviðbrögð við náttúruhamförum (LVN) sem lauk formlega með ráðstefnu og útgáfu bókar haustið 2008. Starfaði með meistaranámi.
1998-2007 - Rauði kross Íslands: Starfaði fyrst sem svæðisfulltrúi á höfuðborgarsvæði, en frá 2001 sem verkefnisstjóri í neyðarvörnum og neyðaraðstoð. Sá m.a. um fræðslu, æfingarmál og ráðgjöf félagsins á því sviði. Varamaður í almannavarnaráði 2005-2007. Fulltrúi Rauða krossins í samræmingarnefnd vegna hjálparliðs almannavarna 2003-2007. Samráðsnefnd vegna samhæfingarstöðvar almannavarna, 2006-2007. Ráðgjafahópur Isavia ohf (áður Flugmálastjórn og Flugstoðir ohf) og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra vegna hópslysaæfinga. Í áhöfn Rauða krossins í Samhæfingarstöð almannavarna, 2001-2007 og hafði umsjón með starfi Rauða krossins í stöðinni sem og landsskrifstofu og samræmingu á viðbrögð félagsins á neyðartímum.
1989-1998 - Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum: Starfaði við fisksjúkdómarannsóknir og tók þátt í fjölmörgum rannsóknarverkefnum.
Hef unnið við flest þau störf er tengjast fiski og fiskvinnslu. Starfaði sem barþjónn á farþegaferjunni Norrönu hluta úr sumri. Starfaði á sjúkrahúsi Siglufjarðar við umönnunarstörf á sjúkradeild og einnig á öldrunardeild og rannsóknastofu á sumrin meðan á lífeindafræðináminu stóð.
Félagsstörf og stjórnmál á vegum Mosfellsbæjar:
Bæjarfulltrúi frá 1998 til 1. janúar 2013. Var bæði skipuð forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs.
Heilbrigðisnef Kjósarsvæðis 2010-2013 (formaður)
Fræðslunefnd 2006-2009 (formaður)
Fjölskyldunefnd 2002-2006 (formaður), 1998-2002 (varamaður).
Umhverfisnefnd 1998-2002, 2009-2010.
Fulltrúi í stýrihópi um mótun Lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar 2011.
Fulltrúi í stýrihópi Staðardagskrár 21 í Mosfellsbæ 1999-2001, 2008-2010.
Stjórn SORPU bs 2004-2013, (varaformaður frá 2006, formaður 2008-2010). Fulltrúi Sorpu í verkefnisstjórn svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs og samstarfsnefnd sorpsamlaga á SV landi.
Stjórn og fulltrúaráð hjúkrunarheimilisins Eirar frá 2003 til mars 2011.
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins frá 2005-2013, áhættugreiningarnefnd á vegum nefndarinnar frá 2004.
Varamaður í Stjórn Sambands sveitarfélags á höfuðborgarsvæði (SSH) 2002-2007, 2008-2013.
Dómnefnd Krikaskóla 2007 (formaður).
Samstarfshóps Mosfellsbæjar sem stofnaður var í október 2008 vegna efnahagshruns (formaður).
Félagsstörf og stjórnmál utan Mosfellsbæjar:
Rannsóknarnefnd almannavarna 2014-, (formaður). Kosin af Alþingi.
Fagráð Brunamálaskólans 2011-2015. Skipuð af umhverfis- og auðlindaráðráðherra. Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Brunamálaráð 2009-2011. Skipuð af umhverfisráðherra. Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Skólaráð Brunamálaskólans frá 2009-2011. Skipuð af umhverfisráðherra. Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Stýrihópur staðardagskrár 21 á landsvísu. Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 2007-2010.
Starfshópur á vegum félagsmálaráðuneytisins sem mótaði reglur um þjónustu við 16 - 20 ára fötluð ungmenni að loknum skóladegi í framhaldsskóla. Fulltrúi Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæði. Starfshópurinn starfaði 2007-2008.
Nefnd á vegum forsætisráðuneytisins sem er að útbúa verklagsreglur vegna tjónamála eftir náttúruhamfarir. 2010-2012
Sat í nemendaráðum bæði í Reykjaskóla í Hrútafirði 1981-1983 og Tækniháskólans 1986-1988. Hef setið í ýmsum foreldrafélögum og starfsmannafélögum.
Skrif og útgáfa:
Útgáfa bókarinnar Langtímaviðbrögð við náttúruhamförum, ásamt samnefndum rannsóknarhópi. Sat í ritstjórn Varmár, sjálfstæðisfélaganna í Mosfellsbæ og setti upp netsíðu félagsins. Gaf út fréttablað svæðisskrifstofu RKÍ á höfuðborgarsvæði og skrifaði fréttir og upplýsingaefni tengt starfinu á netsíðu Rauða kross Íslands. Hef skrifað vísindagreinar er tengjast fisksjúkdómum og viðbrögðum sveitarstjórna eftir náttúruhamfarir og annað tengt neyðarstjórnun. Hef skrifað fjölda greina um sveitarstjórnarmál í dagblöð og bæjarblöð og hefur haldið úti eigin heimasíðum frá árinu 2000.