Dagur umhverfisins í Mosfellsbæ
25.4.2010 | 11:49
Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert, en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Í ár verður dagurinn tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni.
Dagur umhverfisins er haldinn hátíðlegu í Mosfellsbæ. Af því tilefni býður Varmárskóli gestum að kynna sér útikennslusvæði Varmárskóla, við Skólagarðana að Varmá frá kl. 12:00-14:00. Í boði verða leikir um svæðið, kveikt verður upp í hlóðunum og boðið uppá heitan drykk. Allir eru boðnir velkomnir að eiga góða stund í útieldhúsinu, Vin.
Mosfellsbær býður einnig uppá opið hús í fuglaskoðunarhúsinu við Leiruvog frá kl. 10:00-15:00. Fuglasérfræðingur verður á staðnum og veitir upplýsingar um fuglana á svæðinu og leiðbeinir um greiningar á þeim. Fuglafræðingar frá East Anglia háskólanum líta við og fræða gesti um árlegar rannsóknir sínar á jaðrakan í Leiruvogi.
Leiruvogurinn er einstakur hvað varðar fuglalíf allan ársins hring og því gott að fylgjast þar með fuglum í sínu náttúrulega umhverfi. Húsið er vel staðsett við Langatanga neðan við golfvöllinn, þar sem gott útsýni er yfir bæði hvíldarstað margra fuglategund og sjálfar leirurnar þar sem þeir koma til að afla sér fæðu.
Ég hvet Mosfellinga til að nýta sér tækifærið og kynna sér þá góðu aðstöðu sem boðið er uppá í fuglaskoðunarhúsinu undir leiðsögn fróðra manna. Nánari upplýsingar um daginn í Mosfellsbæ.
Nánar um dag umhverfisins á landsvísu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:50 | Facebook
Athugasemdir
Ásdís Sigurðardóttir, 25.4.2010 kl. 12:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.