Risaánamaðkar á minni lóð
10.8.2007 | 16:04
Mér þótti þetta pínulítið skondin frétt, ég verð nú bara að segja það. Sjáið ekki fyrir ykkur fyrirsögnina: Dæmdur fyrir að stela ánamöðkum af hverju fékk maðurinn ekki bara leyfi til að leita að möðkunum.
Hér á minni lóð mæta mér feitir og pattaralegir ánamaðkar í öllum beðum. Ég var ekki búin að átta mig á því að maðkarnir mínir væru náttúruauðlind.
Hér er fróðleikur dagsins, beint af vísindavefnum.
Í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndals segir að orðið ánamaðkur/ánumaðkur sé afbökun á ámumaðkur.
Ámumaðkur er dregið af orðinu áma sem hér merkir það sama og ámusótt og á ekkert skylt með ámum sem öl er geymt í. Ámusótt er annað heiti yfir heimakomu sem er smitandi húðsjúkdómur. Ámusjúkir eru rjóðir í andliti, hafa sótthita og finna fyrir eymslum. Áður fyrr var sóttin algeng og leiddi oft til blóðeitrunar. Ámusótt er læknanleg með sýklalyfjum.
Skýringin á því af hverju ámumaðkur dregur nafn sitt af ámusótt er sú að maðkurinn átti að lækna sóttina. Í heimild frá miðri 19. öld sem birtist í tímaritinu Blöndu árið 1918 er því lýst þegar "eg jagaði hana [þ.e. heimakomuna] úr mér með jötunuxum og ánamöðkum." Hér virðist sem ámusóttin hafi verið nudduð úr andliti hins sjúka með ánamöðkum og jötunuxum sem eru af bjölluætt.
Eftir því sem við vitum best á orðið ánamaðkur því ekkert skylt með dvergnum Ána sem nefndur er í Völuspá.
Heimildir og mynd:
- Ásgeir Blöndal Magnússon, Íslensk orðsifjabók, Orðabók Háskólans, Reykjavík, 1989.
- Íslenska alfræðiorðabókin, Örn og Örlygur, Reykjavík 1990.
- British Livebearer Association
Ánamaðkaþjófur á ferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir þetta en hvenær kemurðu austu?? síminn minn er 8658698
Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2007 kl. 18:08
Karlinn fór í dag með strákinn sem er á Olísmótinu og er sá eldri á leiðinni heim. Ég verð allan morgundaginn og ætla að koma til þín. Hvaða tími hentar best??
Herdís Sigurjónsdóttir, 10.8.2007 kl. 19:11
hehehehehe, á nú að fara að loka menn inni fyrir ´svona þjófnaði Nóg af möðkum í görðum hér,,, maður ætti kannski að reyna að selja þá fyrir svona smá slikk
Bjarney Hallgrímsdóttir, 10.8.2007 kl. 21:21
Já Bjarney, virkja maðkana .
Herdís Sigurjónsdóttir, 11.8.2007 kl. 09:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.