Með sól í hjarta

110_F_31467_qtuDeathdwNgcvifxGZsKlCeRWyuMI

Það er ekki spurning að lundin er léttari á landanum þegar veðrið er gott eins og verið hefur undanfarið. Veðrið skiptir okkur Íslendinga einfaldlega miklu máli og þegar svo langur góðviðriskafli hefur verið eins og nú liggur við að maður haldi að maður sé í útlöndum og fari ósjálfrátt að tala ensku. Fólk talar meira saman og ávarpar frekar ókunnuga. Til að mynda fór ég í lyftu í dag og var samferða eldri manni sem brosti út í eitt og fór að tala um góða veðrið. Reyndar hef ég varla hitt nokkur mann í dag án þess að sá hinn sami hafi ekki rætt veðurblíðuna og að þessum góða kafla fari nú senn að ljúka.

það er þó ljóst að framundan er rigning, sem er svo gott fyrir gróðurinn er það ekki? Whistling...


mbl.is Þurrum góðviðriskafla að ljúka - skin og skúrir um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Það var gaman að reyta arfa í dag og verður gaman að klára verkið á morgun.  Erum með matjurtir í skólagörðunum.  Sofa svo á svölunum að loknu erfiðu dagsverki!!!!

Vilborg Traustadóttir, 4.7.2007 kl. 21:30

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

OHHHH það verður líka gott hjá okkur á Ströndunum í næstu viku

Herdís Sigurjónsdóttir, 4.7.2007 kl. 22:04

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Já hlakka ekkert smá til.  Búin að panta sól þar!!!!!

Vilborg Traustadóttir, 4.7.2007 kl. 22:50

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, maður getur alltaf huggað sig með því að gróðurinn þarf bleytu.  Góða ferð á Strandirnar. Verðurðu lengi þar ??

Ásdís Sigurðardóttir, 5.7.2007 kl. 00:09

5 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Við ætlum að vera á Ströndunum í nokkra daga. Mamma og pabbi eiga gullbrúðkaupsafmæli þann 13. júlí og ætlum við systurnar og Vilborg Trausta og fjölskyldur að fagna með þeim .

Herdís Sigurjónsdóttir, 5.7.2007 kl. 06:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband