Bætum sektarupplýsingum inn í landkynningarmyndbandið

speeding-ticket-433x185

Enn berast upplýsingar um að fólk láti ekki segjast í hraðakstrinum, þrátt fyrir áróður og hækkun sekta. Ég verð samt að upplifun mín af akstri á þjóðvegi 1 sýnir betra aksturslag og hegðun í umferðinni. Við höfum keyrt á löglegum hraða og hefur verið áberandi minna um framúrakstur og lítið sem ekkert um glannaskap, en einn ökufantur er samt einum fanti of mikið.

Það ætti kannski að bæta fræðslu um hraðakstur og háar sektir inn í landkynninguna fyrir lendingu. Gæti verið eitthvað á þessa leið. "The best way to enjoy the beautiful treeless landscape of Iceland is to drive around the countryThe general speed limit is 50 km/h in urban areas, 80 km/h on gravel roads in rural areas, and 90 km/h on asphalt roads."

"If you speed in Iceland, you must pay, on the spot and smile my friend Smile ".

 


mbl.is Hraðakstur þrátt fyrir helmingi hærri sektir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég segi nú eins og þú, að ég upplifi umferðina betri. Góð hugmynd hjá þér með útlendinga og svo verður bara að láta bílaleigur kynna þetta vel.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.7.2007 kl. 23:12

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Það er um að gera að fara varlega hvað sem öllum sektum líður.  Maður svíkur bara sjálfan sig á því að fara yfir löglegan hraða.  Varlega á Strandavegunum Herdís mín, þó þeir séu alltaf að skána þá eru þeir örmjóir og varhugaverðir.

Vilborg Traustadóttir, 9.7.2007 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband