Klukkuð

dart

Ég var klukkuð af Önnu Kristjánsdóttur blogggvinkonu minni, en ég var ekki alveg með á nótunum með þetta klukk. Sá svo áðan hvað það merkti og ákvað að slá til. En svo fann ég það út áðan og þýðir það að ég þarf að setja niður 8 atriði um sjálfa mig, sem eru ekki öllum augljós og klukka síðan 8 aðra bloggvini.

Ég fór að velta því fyrir mér hvað ég gæti sagt um mig, sem ekki væri öllum ljóst, því ég hef verið talin svona frekar opin og blogga oft um mig og mína. En ég ætla að prófa og verðið þið að dæma hvort það hefur tekist hjá mér. 

  1. Veit oft ýmislegt fyrirfram, en átta mig ekki alltaf á því af hverju. En trúlega eru það Strandagenin sem þar kikka inn.
  2. John Lennon var myrtur á afmælisdaginn minn 8. desember, þegar ég var í Reykjaskóla
  3. Ég er gamall togarajaxl, var á frystitogara í Alaska um tvítugt
  4. Er mikil tækjadellukona og er með króníska tölvu- og bíladellu....enda Tetra-tröll
  5. Hef aldrei þurft að skipta um dekk á bíl, en kann það vel ..... í alvöru Smile
  6. Er með fullkomnunaráráttu, sem hefur samt mildast með tímanum.... en fyrir nokkrum árum áttaði ég mig á því að allir gera mistök og það er bara allt í lagi
  7. Ég er svona 9 ára kona...vinn í 9 ár á hverjum vinnustað
  8. Ég elska lífið og er lífsmottóið mitt "að lifa lífinu lifandi"

Nú mun ég klukka átta góða bloggvini og hlakka til að sjá viðbrögðin W00t 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Flott lýsingin á sjálfri þér. Get alveg ímyndað mér þig svona. Það hefur líka aldeilis verið fín ferðin vestur.  Enn er komin helgi, ætlarðu í útilegu?? ég stefni heim í slökun og með fullt af nýjum lífsreglum frá doksa. Blogga kannski um það seinna í 8.liðum 

Ásdís Sigurðardóttir, 19.7.2007 kl. 21:07

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Klukkaðpi þig áður en ég sá þetta.  Já og takk fyrir síðast!

Vilborg Traustadóttir, 19.7.2007 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband