Farvel Sílamávur

Mikið ofboðslega er þetta orðið hvimleitt með Sílamávana og fleiri mávategundir reynar. Þeir eru náttúrulega farfuglar og borða síli og annað fiskmeti sem hann skækir úr á sjó og eru líka frægir eggja og ungaþjófar. En Þeir eru líka hræætur og gammast um allt eins og hundar í leit að æti innan um ferðamenn á tjaldsvæðum. Þetta var mjög áberandi á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri þegar við vorum á N1 mótinu og þegar fólk var að fara af svæðinu komu mávarnir í hópum og hreinsuðu til og drituðu um allt. Alveg gæti ég lifað með því að sjá þá ekki sveimandi á tjaldsvæðum og við bæjartjarnir, en ég trúi því nú samt að þetta sé skammgóður vermir og þeir mæti aftur á tjörnina blessaðir.
mbl.is Sílamávurinn lætur sig hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

sóðaskapur okkar mannana dregur að sér þessa fallegu fugla sem hreinsa til eftir okkur..

Óskar Þorkelsson, 20.7.2007 kl. 09:16

2 Smámynd: Hallfríður Jóna Jónsdóttir

Ég er hjartanlega sammála Óskar. Því að það er ótrúlegur sóðaskapur hjá okkur mönnunum á tjaldsvæðum landsins. Auðvitað sækir fuglinn í þetta æti.

Hallfríður Jóna Jónsdóttir, 20.7.2007 kl. 10:30

3 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já ekki spurning, það má svo sannarlega bæta umgengnina. Mávarnir sækja líka á opna ruslahauga og eru tjaldsvæðin oft á tíðum eins og ruslahaugar eftir okkur mennina.

Herdís Sigurjónsdóttir, 20.7.2007 kl. 11:01

4 Smámynd: Sævar Finnbogason

Það þarf að fækka mávnum.

Mér finnst bara findið að hlusta á fólk vera að reyna að gera sig breiðara á því að standa með mávinum og/eða koma höggi á Gísla Martein fyrir að segja það sem flestir hugsa í þessu máli.

Maðurinn hefur teið það upp hjá sér að halda ýmsum dýrum í skefjum eins og rottum, músum, mink, ref og skordýrum vegna þess að okkur fynnast þau hafa truflandi áhrif á líf okkar og/eða valda skaða og óþægindum og mávurinn er bara ein af þessum tegundum. Líkt og geitungurinn og mýsnar sem eru nú reyndar ferlega sætar, sérstaklega ungarnir.

Að auki er þetta er skaðræðis kvikindi þegar stofninn er orðinn þetta stór einsog hann er núna og verður sennilega áfram nema maðurinn geri eitthvað í stöðunni. Hann leggst á varp annara fugla og getur farið illa t.d. æðarvarp 

Sævar Finnbogason, 21.7.2007 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband