Moggabloggaramót að ári, haldið á fiskideginum mikla á Dalvík 2008

Ég skellti því fram á heimasíðunni hjá henni Ásdísi hálfnöfnu minni og elstu bloggvinkonu hvort við ættum ekki að halda moggabloggaramót á fiskideginum mikla á Dalvík 2008. Ég skrifaði þetta líka í færslu í gær við fréttina um fiskidaginn mikla, en mig hefur alltaf langað að fara, en aldrei komist.

Ekki stóð á viðbrögðum og svei mér þá ef ekki stefnir bara í gott bloggvinamót. Það verður haldið helgina eftir verslunarmannahelgi á fiskideginum mikla á Dalvík. Ég býð öllum bloggvinum út að borða með mér á föstudagskvöldinu.


mbl.is Vináttukeðja og friðardúfur á Dalvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég mæti á bloggvinamót að ári.

Huld S. Ringsted, 11.8.2007 kl. 10:02

2 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Kæra Herdís, til hamingju með þessa ágætu hugmynd ! Ég fagna henni af heilum hug. Auðvitað reyni ég að mæta ásamt minni ágætu eiginkonu, Kristínu Ingiríði Hallgrímsson, sem er ein bláasta íhaldssál sem finnst, hvort sem er norðan eða sunnan heiða enda alin upp við alls konar fiskmeti í gamla Vesturbænum í R 101 !

Með kærri kveðju frá Siglufirði (Vesturbæ Fjallabyggðar), KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 11.8.2007 kl. 10:42

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Aldeilis góð viðbrögðin við tillögunni kæra vinkona. Sjáumst vonandi í dag. 

Ásdís Sigurðardóttir, 11.8.2007 kl. 11:45

4 Smámynd: Karl Tómasson

Frábær hugmynd mín kæra. Ég mæti.

Takk fyrir allt hrósið Herdís mín varðandi sýninguna og mig.

Myndin þín á sýningunni er frábær og takk fyrir að leiyfa okkur að hafa hana með.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 11.8.2007 kl. 21:37

5 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Systir mín brá sér á fiskidaginn mikla í súpuna í gær.  Þau fengu á fyrsta stað litla skvettu á disk. Allt í lagi með það svona í fyrstu.  Héldu í næsta hús.  Þar var til ein matskeið á mann.  Í þriðja húsinu var allt búið.  Þau sneru frá enda biðraðir langar við hvert hús en þeim fannst samt ákaflega gaman.

Vilborg Traustadóttir, 11.8.2007 kl. 23:02

6 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Líst vel á þetta. Ég mun mæta. :)

Stefán Friðrik Stefánsson, 14.8.2007 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband