Öðruvísi sumar

Ég vona nú að allir gestir hennar Menningarnætur hafi komist heim að lokum.

Við Rituhöfðafjölskyldan skruppum örstutt á tónleikana á Miklatúni, svona rétt til að skutla flíspeysu til ömmu Binnu og svo ætlaði Sturla að vera með henni á tónleikunum og flugeldasýningunni. Í gær var Elli var að helluleggja allan daginn, Ásdís á leikæfingu og við hin vorum bara heimapúkar og nenntum ekki í bæinn.

Þetta er annast búið að vera svona öðruvísi sumar hjá okkur fjölskyldunni. Við fórum ekki í hina árlegu sólarlandaferð í vor, keyptum okkur svo fellihýsi og lögðumst í útilegur. Fórum ekki á síldarævintýrið á Siglufirði, eins og við gerum á hverju ári. Við sáum ekki Gay Pride sem við höfum sérstaklega gaman að og svo slepptum við líka menningarnóttinni í Reykjavík. Hvað er eiginlega að gerast hjá okkur?


mbl.is Síðustu gestir Menningarnætur á leið heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

Æ já, stundum fer eitthvern veginn allt öðruvísi en maður hefur ætlað sér, en það er nú heldur ekkert leyðó að skella sér í útilegur um landið

Ég hef nú farið á nokkur Síldarævíntýri á Sigló og voða gaman en hef ekki farið síðustu árin, hef látið Neistaflug duga.  En hins vegar erum við guttinn alltaf á leiðinni þangað en svo er nennarinn ekki í lagi að bruna norður.  Ég er þá hjá Þórunni og Skúla Jóns, mjög góðir vinir mínir, Þórunn er héðan frá Esk og var nágranni minn hér í denn

Bjarney Hallgrímsdóttir, 19.8.2007 kl. 12:35

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvís.  Þú ert bara að þroskast, þetta kemur með aldrinum að vilja njóta tímans betur með færri í kringum sig og þannig er náttl. að fjölskylduböndin ertu sterkustu böndin í lífi manns og þau meiga aldrei bresta.  Eigðu góða viku frammundan. Kveðja á Dísirnar og Bóthildur biður sérstaklega vel að heilsa Sædís og er alveg til í að fá hana í heimsókn aftur þegar þið verður á ferð hér fyrir austan.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.8.2007 kl. 14:05

3 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Hæ, hæ

Gleymið ekki að lesa Reykavíkurbréf Mogga í dag. Íbúalýðræði er það sem koma skal!!!

Gunnlaugur B Ólafsson, 19.8.2007 kl. 18:11

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Við höfðum líka "öðruvísi daga" á Djúpuvík, eða ættum við að segja "dásamlega daga"?

Vilborg Traustadóttir, 19.8.2007 kl. 22:49

5 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já það er alltaf gaman þegar fjölskyldan er saman og skiptir ekki máli hvort verið er að fara í útilegur, leggja hellur eða bara gera ekki neitt og rétt þetta er kannski bara þroskamerki.

Já Vilborg "Dásamlegir dagar á Djúpuvík". .hljómar vel ættum við ekki að halda þá árlega?

Herdís Sigurjónsdóttir, 20.8.2007 kl. 09:40

6 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Meira en til í það!!!

Vilborg Traustadóttir, 20.8.2007 kl. 12:33

7 identicon

Hefðir eru góðar en maður má passa sig að festa sig ekki of mikið í þeim. Ég fór ekki á danska daga í Stykkishólmi í ár, ég fór ekki á Gay Pride í ár og ég sá ekki flugeldasýninguna á Menningarnótt í ár. En viti menn, mér líður ekkert illa yfir því

knús og sjáumst á morgun með bros á vör dúlla snúlla

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband