Stríð í Mosfellsbænum

Krókabyggð 5 í Mosfellsbæ

Búið er að lýsa yfir stríði milli hverfa í Mosfellsbænum. Ekki svona stríði eins og í denn á Sigló þar sem unglingar börðust í orðsins fyllstu merkingu fyrir ofan kirkjugarðinn, heldur litaþema skreytistríði sem stendur yfir á meðan á bæjarhátíðin okkar "Í túninu heima"  er. Hátíðin hófst með hátíðar bæjarstjórnarfundinum í síðustu viku og stendur til næsta sunnudags. 

Ég sá myndir frá Lindu Ósk vinkonu minni úr Grundafirði, þar sem þeir hafa verið með svona litaþema í mörg ár. Ég lagði því til að við í Mosfellsbæ gerðum slíkt hið sama. Nú Rituhöfðinn minn er í GULA hverfinu og varð ég heldur spæld með það því þegar ég lagði þetta til, þá fylgdi þeirri tillögu að mitt hverfi yrði Blátt Whistling.

En í morgun fékk ég svo senda mynd frá Klöru og Þresti sem eru í bláa hverfinu. Húsið við Krókabyggð númer 5 er nú glæsilega skreytt með fallega bláum borðum og sendi ég henni um hæl að Rituhöfðinn yrði með sérstakan skreytifund í kvöld og væru ýmsar hugmyndir í gangi. Gulir bílar í innkeyrslunni, að mála öll húsin gul, að fá gula tjaldborg frá Bónus og fleira og fleira. En við höfum sem sé eitt takmark, sem er að vinna götuskreytinguna 2007.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært og ekki verra að vera í gula hverfinu þar sem hann er svo glaðlegur, gaman, gaman og um að gera að skreyta allt sem hægt er að skreyta. Því miður missi ég af þessu þar sem ég verð í Tyrklandi annars hefði ég mætt sem sólin sjálf

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 11:41

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Elsku Linda mín þið Helgi verðið líka í GULA þemanu  . Þú lofar að taka eitt ljósgult á fæti frá Chile eða Ástralíu fyrir mig í tilefni bæjarhátíðarinnar .

Herdís Sigurjónsdóttir, 23.8.2007 kl. 12:39

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vona að veislan lukkist vel. Maður verður stundum að lúffa fyrir litum, en sá blái er lang flottastur. Sólarkveðja frá Selfossi

Ásdís Sigurðardóttir, 23.8.2007 kl. 15:47

4 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Græn tillaga 

Ég sá í sumar að starfsmenn Fjarðaráls á Reyðarfirði eru búnir að venja sig á góðan sið. Þeir bakka alltaf bílum sínum í bílastæði.  Má ekki heimfæra þetta t.d. á gula bíla eða græna bíla? Verðlauna síðan alla bíleigendur sem bakka í bílastæðin.  

Þetta er umhverfisvænt (grænt)  Það að auki eru bíleigendur fljótari í vinnuna á morgnana og þurfa ekki að byrja á því að bakka út úr stæðinu þegar þeir fara af stað.

Tala nú ekki um að þetta er líka öruggara.  Bílar eyða og menga meira þegar vélin er köld. 

Marinó Már Marinósson, 23.8.2007 kl. 20:15

5 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Verða þá ekki bakaða "stríðstertur"???

Vilborg Traustadóttir, 23.8.2007 kl. 21:25

6 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

r

Vilborg Traustadóttir, 23.8.2007 kl. 21:25

7 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Já, alveg rétt Anna.

 Mitt innlegg átti kannski ekki alveg við inní þessa umræðu að þessu sinni um strið milli hverfa.  

Marinó Már Marinósson, 24.8.2007 kl. 00:45

8 identicon

Kíkti í heimsókn til litlu sys í löndunum. Húsið hennar skemmtilega grænt og vænt,   fagurlega skreytt af eiginmanninum. 

Skemmtileg uppákoma hjá ykkur í Mosó :)

Anna Beee (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband