Ein til frásagnar

Hræðilegt.

Ég er að lesa bókina "Ein til frásagnar", frásögn  Immaculée af blóðbaðinu í Rúganda 1994. Ég hef ætlað að lesa þessa bók lengi og greip hana með mér í Keflavík í gær. Þvílíkur hryllingur og grimmd, mig verkjar í hjartað.

Annars var ég að koma til New Orleans og held til á þessu líka glæsilega gamla hóteli í franska hverfinu. Elli var á leiðinni heim úr seinni lyfjagjöfinni í dag, en hann fékk að fara heim af spítalanum seinnipartinn. Elsku karlinn enn með margfalda tungu og vona ég bara að þetta grói hratt og örugglega og ekki verði neinir eftirmálar.


mbl.is Hundrað manns létust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku hjartans dísin mín, þekkjandi þig eins vel og ég geri þá veit ég að þér hefur ansi illa að vera fjarverandi Ella þínum á svona tíma

Allt getur skeð.....aumingja Elli en gott að allt sé í rétta átt.

Gangi þér vel og reyndu eins og þú getur að fá sem mest út úr ferðinni og já það er gott að eiga góða að á stundum sem þessum.

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 23:43

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já ég geri það vinkona. Svo er ég svo rík að ég á stóran bróður sem ætlar að koma til mín á föstudaginn og við munum verja helginni hér saman .

Herdís Sigurjónsdóttir, 7.2.2008 kl. 01:46

3 Smámynd: Guðrún Indriðadóttir

Elsku Herdís.

Ég vona að þú hafir það gott í New Orleans.  Hugsa til þín þetta er jú staður sem varð fyrir miklum hörmungum og örugglega ekki allt komið í samt lag, svo þú tekur þetta bara út og setur í minnisbankann.  Ég vona að Elli hristi þetta af sér fljótt og örugglega það grær nú allt svo fljótt í munni. Hafðu það gott, hugsa til ykkar skötuhjúanna.

knús Rúna

Guðrún Indriðadóttir, 7.2.2008 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband