Siglufjarðarmafían á Facebook

Ég hef haft síðu á Facebook frá því sl. vetur, en þá var búinn til hópur í bekknum mínum í umhverfis- og auðlindafræðinni í HÍ. Í sumar varð svo heldur betur sprenging í áhuga hjá Íslendingum og vex fjöldinn í vinalistanum dag frá degi. Þetta er stórsniðugt því þarna getur maður fylgst með fjölskyldumeðlimun í Ameríku og vinum sem maður hittir ekki oft og geta einstaklingar haft bein samskipti á netinu.

Í síðustu viku bjó ég svo til hóp sem ég kalla Siglufjarðarmafíuna. Hópurinn er stofnaður fyrir Siglfirðinga og aðra sem eiga ættir sínar að rekja til Siglufjarðar, hafa búið þar, eru giftir Siglfirðingum, eða eru einfaldlega vinir Siglufjarðar ...
Er tilgangurinn með hópnum að sanna það sem Gestur Fanndal sagði "Siglfirðingum er ekkert að fækka, þeir búa bara annars staðar"
Nafnið Siglufjarðarmafían kemur til vegna þess að þegar ég segist vera Siglfirðingur hef ég oft fengið að heyra "Ó já, ert þú ein af Siglufjarðarmafíunni"

Það verður gaman að sjá hvað vex í Siglufjarðarmafíunni á næstu dögum, en fyrstu dagana vorum við Linda Stefáns bara tvær, svo kom Elli minn og Kolla á Bylgjunni .... svo sá ég í morgun að fjöldi stoltra Siglfirðinga er kominn upp í 38 og óx fjöldinn um fjóra á þessum 10 mínútum sem ég var að skrifa þessar línur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband