Einkasjúkrahús PrimaCare í Mosfellsbæ
24.9.2009 | 17:57
Í morgun fjallaði bæjarráð Mosfellsbæjar um áform fyrirtækisins PrimaCare um stofnun einkasjúkrahúss í Mosfellsbæ. Bæjaryfirvöld hafa unnið hratt að öllu sem snýr að undirbúningi okkar undir styrkri stjórn Haraldar Sverrissonar bæjarstjóra.
Það er mjög spennandi mál fyrir okkur Mosfellinga ef verður af byggingu einkasjúkrahúss og hótels PrimaCare í Mosfellsbæ. Þetta smellpassar við það sem við höfum verið að vinna að varðandi heilsubæinn Mosfellsbæ þar sem Reykjalundur spilar stórt hlutverk. Það er einnig frábært að fyrirtækið leggur áherslu á það að umhverfissjónarmið verði höfð að leiðarljósi við byggingu og rekstur sjúkrahússins og jafnframt er áhersla lögð á sjálfbærni og samspil við náttúruna.
Það þarf ekki að orðlengja það að slíkt fyrirtæki með rúmlega 600 störf skiptir okkur miklu máli og gleðiefni ef forsvarsmenn PrimaCare kjósa að reisa sjúkrahúsið í Mosfellsbæ.Yfirlýsing frá bæjarráði Mosfellsbæjar vegna áforma PrimaCare um stofnun einkasjúkrahúss:
Bæjarráð Mosfellsbæjar lýsir yfir eindregnum stuðningi við áform forsvarsmanna fyrirtækisins PrimaCare um byggingu einkarekins sjúkrahúss og hótels á Íslandi og fagnar því að PrimaCare sýni Mosfellsbæ áhuga varðandi hugsanlega staðsetningu. Mosfellsbær og forsvarsmenn PrimaCare hafa verið í viðræðum um samvinnu varðandi hið nýja sjúkrahús.
Bæjarráð lýsir jafnframt sérstakri ánægju yfir því að umhverfissjónarmið verði höfð að leiðarljósi við byggingu og rekstur sjúkrahússins og að áhersla verði lögð á sjálfbærni og samspil við náttúruna og samræmist það jafnframt sjónarmiðum Mosfellsbæjar. Mosfellsbær gaf nýverið út stefnu í umhverfismálum til ársins 2020 sem ber heitið Sjálfbært samfélag sem rímar mjög við stefnu PrimaCare.
Mosfellsbær hefur unnið að stefnumótun þar sem fram kemur að Mosfellsbær verði yfirlýstur heilsubær og leiðandi á sviði endurhæfingar, heilsueflingar og lýðheilsu á Íslandi. Eitt mikilvægasta fyrirtæki Mosfellsbæjar er Reykjalundur en fyrirtækið er í fararbroddi á sviði endurhæfingar í landinu.
Gert er ráð fyrir að hjá PrimaCare muni starfa rúmlega 600 manns og myndi fyrirtæki af þeirri stærðargráðu skipta miklu máli fyrir Mosfellsbæ. Yrði það mikið gleðiefni ef forsvarsmenn PrimaCare kjósa að reisa sjúkrahúsið í Mosfellsbæ.
Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ munu gera það sem unnt er til að greiða götu fyrirtækisins svo tryggja megi farsælan starfsvettvang þess í bæjarfélaginu.
Hér á heimasíðu Mosfellsbæjar má fletta kynningarefni sem Mosfellsbær tók saman vegna verkefnisins.
![]() |
Rætt um einkasjúkrahús í Mosfellsbæ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mosfellsbær | Breytt 3.1.2010 kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar 2009
17.9.2009 | 23:14
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar verður haldinn hátíðlegur á morgun, föstudaginn 18. september. Yfirskrift jafnréttisdagsins í ár er "Jafnrétti í skólum - Raddir barna".
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar er árlegur viðburður og er 18. september fæðingardagur Helgu J. Magnúsdóttur fyrrum oddvita Mosfellsbæjar. Helga lét sig málefni kvenna varða með ýmsum hætti. Hún var til að mynda formaður Kvenfélagasamband Gullbringu og Kjósarsýslu, og einnig formaður Kvenfélagasambands Íslands.
Mosfellsbær er hefur sl. tvö ár verið þátttakandi í verkefninu Jafnréttisfræðsla í skólum, í samvinnu við fjögur önnur sveitarfélög, Jafnréttisstofu og Félags- og tryggingamálaráðuneytið. Þess vegna var ákveðið að tileinka jafnréttisdaginn í ár Jafnrétti í skólum, og yfirskrift dagsins er: Jafnrétti í skólum - raddir barna. Börn úr Mosfellsbæ á aldrinum 5 - 15 ára munu koma og fjalla um jafnréttismál út frá sínu sjónarhorni, líkt og sjá má nánar í dagskrá.
Dagskráin jafnréttisdagsins fer fram í Hlégarði, frá kl. 10 - 12. Þátttak er ókeypis.
Dagskrá
10:00 Ávarp
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, varaformaður fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar
10:15 Strákar og stelpur
5 ára nemendur leikskólans Reykjakots
10:25 Jafnrétti í leik og starfi
Nemendur á yngsta stigi í Lágafellsskóla
10:40 Jafnrétti kynjanna frá landnámi til vorra daga
Myndband frá 4. bekk í Vogaskóla 2008-2009
10:50 Hlé - kaffi, te, kleinur og djús
11:15 Hvernig jafnréttisfræðslu viljum við fá í skólanum?
Nemendur unglingadeildar Varmárskóla
11:30 Þátttaka nemenda við framkvæmd jafnréttisáætlunar
Nemendur unglingadeildar Lágafellsskóla
11:45 Jafnréttisviðurkenning Mosfellsbæjar 2009
Jóhanna B. Magnúsdóttir, formaður fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar
11:55 Ávarp bæjarstjóra
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar
12:00 Dagskrárlok
Fundarstjóri verður Sigríður Indriðadóttir, mannauðstjóri og jafnréttisfulltrúi Mosfellsbæjar
Mosfellsbær | Breytt 3.1.2010 kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í túninu heima - bæjarhátíð í Mosfellsbæ
29.8.2009 | 11:09
Það verður mikið um að vera í Mosfellsbænum um helgina á bæjarhátíðinni okkar "Í túninu heima". Sú hátíð er árlegur menningarviðburður í Mosfellsbænum og dagskráin bæði skemmtileg og fjölskylduvæn og óhætt að segja að hér sé eitthvað fyrir alla.
Sigurður Ingvi Snorrason, bæjarlistamaður Mosfellsbæjar
Í gær voru veittar umhverfisviðurkenningar og fengu tveir glæsilegir garðar viðurkenningu. Svöluhöfði 11 fyrir stílhreinan og fallegan garð og Dalatangi 7 fyrir fallegan og vel skipulagðan garð. Einnig fengu verkstæðin þeirra Jóns B og Bjössa í Hlíðartúni 2, sem hafa lagt áherslu á umhverfismál í öllu starfi sínu og er umhverfið í kring um verkstæðin vel snyrt og ætti að vera öðrum fyrirtækjum til eftirbreytni. En þetta vita náttútulega þeir Mosfellingar, sem notið hafa þjónustu þeirra í áratugi. Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar var einnig útnefndur Sigurður Ingvi Snorrason, klarínettuleikari. Mosfellingar þekkja hann vel og hefur hann í áratugi lagt mikið af mörkum til menningarlífs hér í bæ.
Eftir dagskrána á torginu var komið að brekkusöng í Ullarnesbrekkunum. Ullarnesbrekkurnar eru staðsettar í nýja Ævintýragarði okkar Mosfellinga og fórum við þangað í litaskrúðgöngu. Fremst í skrúðgöngunni fór Ólína gulu á bjöllunni og við þessu gulu glöðu á eftir.
Þegar við komum að brúnni við Varmána sviptum við Haraldur bæjarstjóri og Jónas Sigurðsson hulunni af bautasteini, sem hér eftir mun bjóða gesti velkomna í ævintýragarðinn. Þar er einnig hægt að öskra við ána, svona ef krepputaugar fólks eru þandar.
Svo var komið að brekkusöngnum og byrjaði Karlakór Kjalnesinga sönginn og söng nokkur vel valin lög, sem þeir eru búnir að gefa út á diski sem hefur meira að segja að geyma Blakk sem er nú eitt af mínum uppáhalds. En við sungum það oft í Reykjaskóla um árið, en það er annað mál. Svo kom Hljómurinn okkar frábæri, sem aldrei klikkar og kunnu gestir vel að meta þá og sungu með af krafti öll skemmtilegu varðeldalögin.
Við fórum snemma heim, enda var litla skólastelpan hálf lúin eftir tvo stranga daga í nýja skólanum .... já og svo áttum við líka eftir að kveikja á ljósastaurnum við Rituhöfða 4 og gulu seríunni minni sem ég lét gera í litla reynitréð mitt um árið, fyrir fyrstu hátíðina. Við hittum líka góða granna sem voru að leggja síðustu hönd á skreytingar götunnar. Vegabréfaeftirlitið var komið á sinn stað og búið var að lýsa yfir sjálfstæði fríríkisins Rituhöfða, enda erum við löngu komin með póstnúerið 271.
Það er alveg hægt að mæla með því að fara í leikhúsið í Mosfellsbæ. Leikfélag Mosfellssveitar er að sýna Fúttlús, þann skemmtilega söngleik. Við fjölskyldan fórum á fimmtudaginn og skemmtum við okkur konunglega. Leikarar eru krakkar sem hafa verið á leiklistarnámskeiði í sumar og stóðu þau sig frábærlega, miklir talentar þar á ferð.
Í dag verður mikið fjör á Varmársvæðinu, skátarnir með ratleik, flóamarkaður í Álafosskvos og fleira og fleira.... Það er líka hægt að fara á grænmetismarkaðinn í Mosfellsdalnum og fylgjast með sultukeppninni sem er árlegur viðburður og skemmtilegur og er hægt að fá sér kaffi og skúffuköku,,,eða bara grænmeti : O fyrir þá sem eru í aðhaldi.
Það er dagskrá í allan dag bæði í íþróttahúsinu og á svæðinu þar í grennd. Margt að gera fyrir ungu krakkana, unglinga og þá sem eldri eru. Elli er á Tungubökkunum, en þar fer fram mikið fótboltamót fullorðinna og hefur þátttakan aldrei verið meiri. Ólympíuleikar fyrirtækjanna í Mosfellsbæ fara fram við íþróttahúsið og ætlum við að mæta og hvetja Fiskbúðina Mos, þeirra Sigga og Stjána, en bæði tengdó og Sturla hafa bæði verið að vinna þar.
Í kvöld verða fyrst útitónleikar á torginu með Bubba og Egó og Pöpunum og fleiri góðum gestum. Kynnir kvöldsins kemur náttúrulega úr fríríkinu Rituhöfða, sjálfur Steindi Jr. og mun hann sjálfsagt ekki klikka á gríninu frkar en fyrri daginn.
Um miðnætti verður svo ball í íþróttahúsinu í kvöld með Egó og Pöpunum og veit ég að margir munu leggja leið sína á sveitaballið í borginni. Við Elli eigum boð í fjölmörg forpartý um allan bæ og utan. Því er ljóst að fjölmennt verður á ballinu og mikil stemming í sveitinni og ekki síst meðal okkar "gamlingjanna".
Mosfellsbær | Breytt 3.1.2010 kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á fundi bæjarráðs í morgun samþykktum við einróma að senda samgönguráðherra og þingmönnum svohljóðandi bókun:
"Bæjarráð Mosfellsbæjar mótmælir harðlega þeirri forgangsröðun verkefna í vegagerð sem samgönguráðherra, Kristján Möller, hefur tilkynnt um. Í kjölfar ákvörðunar um niðurskurð í vegagerð er tvöföldun Vesturlandsvegar við Mosfellsbæ frestað sem og öðrum brýnum verkefnum á höfuðborgar-svæðinu en á sama tíma tilkynnt um að ákvörðun hafi verið tekin um að ráðast í gerð jarðganga í gegnum Vaðlaheiði.
Tvöföldun hringtorgs og gerð hljóðmana meðfram Vesturlandsvegi, sem tilbúið er til útboðs, og átti að bjóða út í þessum mánuði ásamt tvöföldun á kaflanum frá Hafravatnsvegi að Þingvallavegi, eru afar brýnar framkvæmdir fyrir íbúa Mosfellsbæjar, sem og þá sem ferðast um þennan fjölfarna vegarkafla. Yfir sumartímann eru það 15.750 bílar á dag sem aka þennan vegakafla á Vesturlandsvegi og samsvarar það1,4 milljónum bíla á tímabilinu júní til ágúst.
Vesturlandsvegur er einn hættulegasti þjóðvegur landsins og liggur hann þvert í gegnum Mosfellsbæ. Á síðustu áratugum hafa orðið fjölmörg banaslys innan bæjarmarka Mosfellsbæjar. Á þeim stutta kafla sem fresta á framkvæmdum við hafa orðið þrjú banaslys og að auki fjöldi alvarlegra slysa á kaflanum frá Álafosshringtorgi að Þingvallahringtorgi. Umferð er mjög þung á þessum kafla og umferðateppa algeng á álagstímum. Á síðustu tveimur árum hafa orðið tíu umferðaróhöpp og minniháttar slys á kaflanum frá Álafosshringtorgi að Áslandi. Að auki verða íbúar við Vesturlandsveg fyrir verulegri lífsgæðaskerðingu vegna umferðarhávaða og tafa vegna mikillar umferðar í gegnum bæinn.
Í ljósi þessa er ótækt að fresta framkvæmdum við hringtorg við Álafossveg og gerð hljóðmana við Vesturlandsveginn lengur en orðið er.
Mosfellsbær skorar á samgönguráðherra að endurskoða ákvörðun sína um forgangsröðun verkefna í vegagerð með bætt umferðaröryggi."
Mosfellsbær | Breytt 3.1.2010 kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Breytingar á nefdarskipan Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ
24.6.2009 | 23:33
Þegar ár er í næstu sveitarstjórnarkosningar ákváðum við Sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ að gera töluverðar breytingar á nefndarskipan hjá okkur. Ástæðan er einföld, að auka ábyrgð og hleypa nýju fólki að.
Við bæjarfulltrúar sem höfum sinnt formennsku í nefndum stigum til hliðar og hleyptum nýju fólki að. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri, hefur verið formaður skipulags- og byggingarnefndar í 7 ár, en verður nú aðalmaður í þróunar- og ferðamálanefnd. Bryndís Haraldsdóttir var kosin formaður skipulags- og byggingarnefndar. Erlendur Fjeldsted verður aðalmaður, en hann var varamaður og Daníel Jakobsson verður varamaður. Katrín Dögg Hilmarsdóttir verður varaformaður þróunar og ferðamálanefnd og tekur hún við af Gunnari Inga Hjartarsyni sem verður varamaður.
Ég hef verið formaður fræðslunefndar þetta kjörtímabilið, en hætti því í dag og er nú fulltrúi í umhverfisnefnd. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson tók við formennsku og Hafsteinn Pálsson verður varaformaður. Ég sat síðast í umhverfisnefnd á þar síðasta kjörtímabili og hlakka til nefndarstarfsins, enda nýbakaður umhverfis- og auðlindafræðingur og vona að ég geti lagt eitthvað til málanna. En annar fulltrúi sjálfstæðismanna í nefndinni er Agla Elísabet Hendriksdóttir sem er varaformaður.
Hafsteinn Pálsson var formaður í íþrótta og tómstundanefndar, en fer í fræðslunefndina eins og áður sagði. Theódór Kristjánsson tekur við formennsku í nefndinni og Bjarki Sigurðsson verður aðalmaður, en hann var áður í umhverfisnefnd.
Í menningarmálanefndinni verður Hilmari Stefánsson varaformaður og Helga Kristín Magnúsdóttir kemur inn sem aðalmaður. Grétar Snær Hjartarson víkur úr nefndinni, en Ásta Björg Björnsdóttir sem var varaformaður verður varamaður í nefndinni.
Á fundinum í dag var jafnframt kosið í bæjarráð og voru sömu fulltrúar kosnir í bæjarráð. Ég formaður, Karl Tómasson frá VG, Jónas Sigurðsson frá Samfylkingunni og Marteinn Magnússon áheyrnarfulltrúi frá Framsókn. Kosinn var forseti bæjarstjórnar og var Karl Tómasson kjörinn forseti bæjarstjórnar, Hafsteinn Pálsson fyrsti varaforseti og ég annar.
Ég ætla ekki að neita því að ég kveð fræðslunefndina með vissum söknuði og á eftir að sakna þess að vinna með öllu þessu frábæra fólki sem starfað hefur í og með nefndinni á undanförnum árum. En maður kemur í manns stað og hætti ég ekki að hafa áhuga og skoðanir á fræðslumálum. Framundan eru mörg spennandi verkefni s.s. endurskoðun á skólastefnunni , uppbygging skóla í Leirvogstungu og Krikaskólinn,að verða að veruleika og mun ég taka virkan þátt í því starfi sem bæjarfulltrúi, enda kjörin til þess að gæta hagsmuna íbúanna í skólamálum sem öðru.
Mosfellsbær | Breytt 3.1.2010 kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)